Tíska og hönnun

Vinsælasti fylgihluturinn

Wood Wood
Derhúfur sáust á sýningu Wood Wood á tískuvikunni í Kaupmannahöfn.
Wood Wood Derhúfur sáust á sýningu Wood Wood á tískuvikunni í Kaupmannahöfn.
Derhúfan mun halda vinsældum sínum fram á næsta haust, sé mið tekið af haust- og vetrarlínum þessa árs. Tími tískuviknanna er genginn í garð og virðist derhúfan ætla að verða vinsælasti fylgihlutur ársins 2013. Á sýningu danska hönnunarhússins Wood Wood báru fyrirsætur derhúfur er þær gengu sýningapallinn og það gerðu fyrirsætur J. Crew, Jeremy Scott og Ostwald Helgason einnig. Tískubloggarar og -fyrirmyndir virðast sérstaklega hrifnir af derhúfum og eru gjarnan myndaðar með slíkt höfuðfat á leið á tískusýningar.

? 1860 tóku leikmenn hafnaboltaliðsins Brooklyn Excelsior að ganga með mjúkar derhúfur til varnar sólinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×