Tíska og hönnun

Móðir Kona Meyja flutt í Smáralind

Flíkurnar frá Matrem eru hannaður með það í huga að hægt sé að nota þær áfram eftir meðgöngu og brjóstagjöf.
Flíkurnar frá Matrem eru hannaður með það í huga að hægt sé að nota þær áfram eftir meðgöngu og brjóstagjöf.
Verslunin sérhæfir sig í fatnaði og vörum fyrir verðandi og nýbakaðar mæður. Þar er mikið úrval af alls kyns nauðsynjavörum fyrir meðgönguna og brjóstagjöfina. Þá er Móðir Kona Meyja mjög framarlega í sölu á taubleium og býður upp á persónulega ráðgjöf í þeim efnum. Í versluninni er meðal annars boðið upp á meðgöngu- og brjóstagjafafatnað frá fatahönnuðinum Sigrúnu Baldursdóttur, sem hannar undir merkinu Matrem. "Sum sniðin henta fyrir bæði meðgöngu- og brjóstagjöf og því eru flíkur frá Matrem afar eigulegar,“ segir Sigrún. "Brjóstagjafafatnaðurinn auðveldar aðgengi að brjóstunum og eykur þægindi fyrir mjólkandi mæður. Flíkurnar eru þó hannaðar með það í huga að hægt sé að nota þær áfram sem hönnunarvöru eftir að meðgöngu- eða brjóstagjöf lýkur,“ útskýrir Sigrún en hún hefur fengið einkaleyfi á hönnunina.
Meðgöngu- og brjóstagjafarfatnaður Matrem fæst meðal annars í Móður Konu Meyju.
Meðal nýjunga frá Matrem eru bolir úr lífrænni bómull með GOTS-vottun en úrvalið í þeirri línu mun aukast jafnt og þétt í Móður Konu Meyju. Nánari upplýsingar um Matrem, sem áður hét Lykkjufall, er að finna á matremdesign.com. Úrvalið hjá Móður Konu Meyju er hægt að skoða á mkm.is. Þess má geta að í tilefni opnunarinnar í Smáralind verða allar vörur með 25 prósenta afslætti.
Sigrún Baldursdóttir.
.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×