Fótbolti

Wilshere missir líklega af leiknum gegn Dortmund

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jack Wilshere í leiknum gegn Chelsea.
Jack Wilshere í leiknum gegn Chelsea. Nordicphotos/getty
Jack Wilshere, leikmaður Arsenal, mun líklega ekki taka þátt í leiknum gegn Borussia Dortmund í Meistaradeild Evrópu á miðvikudagskvöldið.

Arsenal leikur með Dortmund, Napoli og Marseille í F-riðli Meistaradeildar Evrópu og er liðið með öðru sæti riðilsins með sex stig.

Wilshere  meiddist á ökkla gegn Chelsea í enska deildarbikarnum og nær líklega ekki leiknum gegn Þjóðverjunum en leikmaðurinn missti einnig af leiknum gegn Liverpool um helgina sem Arsenal vann 2-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×