Formúla 1

Webber ræsir fyrstur í Japan

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mark Webber batt enda á einokun Vettel á fyrsta sætinu á ráspól í morgun.
Mark Webber batt enda á einokun Vettel á fyrsta sætinu á ráspól í morgun. Mynd/Heimasíða Webber
Ástralinn Mark Webber hjá Red Bull stóð sig best í tímatökum fyrir Japanskappaksturinn sem lauk í morgun. Liðsfélagi hans, Sebastian Vettel, ræsir annar.

Vettel getur tryggt sér sinn fjórða heimsmeistaratitil ökuþóra þrátt fyrir að vera aðeins 26 ára. Til þess að það gerist þarf Þjóðverjinn að vinna sigur og Fernando Alonso hjá Ferrari að hafna í níunda sæti eða neðar. Alonso ræsir áttundi á morgun.

Lewis Hamilton hjá Mercedes nældi í þriðja sætið og Romain Grsjean hjá Lotus ræsir fjórði.

Kappaksturinn hefst klukkan 6 í fyrramálið og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×