Formúla 1

Hamilton: Yfirburðir Vettel eru farnir að svæfa áhorfendur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sebastian Vettel
Sebastian Vettel nordicphotos / getty
Ökuþórinn Lewis Hamilton vill meina að yfirburðir  Sebastian Vettel í Formúlu 1 kappakstrinum um þessar mundir sé að svæfa áhorfendur og að áhuginn á keppnunum sé að minnka.

Vettal vann fjórða mótið í röð um helgina og gæti bráðlega orðið heimsmeistari fjórða árið í röð en Þjóðverjinn getur tryggt sér heimsmeistaratitilinn í Japan um næstu helgi.

Það eru samt sem áður enn fjögur mót skipulögð í upphafi ársins 2014 og því lítil spennan framundan.

„Ég vorkenni í raun áhorfendum,“ sagði Hamilton.

„Þetta minnir mann á gullaldarár Michael Schumacher og oft á tíðum ekki mikil spenna í hverjum kappakstri.“

„Ég man þá eftir því að maður vaknaði til að sjá upphaf kappakstursins og síðan fór maður bara aftur að sofa, maður vissi alltaf hver myndi vinna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×