„Nú finnst mér þetta komið gott hjá mér“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. september 2013 08:00 Guðni (t.v.) og Sigurður Ragnar taka til hendinni á Laugardalsvelli. Mynd/GVA
Sigurður Ragnar Eyjólfsson segir aðstoðarmann sinn, Guðna Kjartansson, eiga afskaplega stóran og oft á tíðum vanmetinn þátt í árangri kvennalandsliðsins í knattspyrnu undanfarin ár. Sigurður Ragnar rifjar upp í pistli sínum þegar Guðni tjáði honum í sumar að hann ætlaði að hætta sökum aldurs. Þá hafði Sigurður Ragnar ekki gert upp við sig hvort hann yrði áfram með liðið eður ei. Guðni, sem er 66 ára, var aðstoðarmaður Sigurðar Ragnars með landsliðið frá fyrsta degi til þess síðasta. Sigurður segir Guðna hafa verið afar traustan og hjálpin ómetanleg. „Hann stóð alltaf 100% við bakið á mér og veitti mér innblástur og stuðning í landsliðsþjálfarastarfinu. Traustari mann get ég ekki fundið og mun sennilega aldrei finna,“ segir Sigurður og rifjar upp feril Guðna sem leikmann og þjálfara. Guðni, sem var hluti af gullaldarliði Keflavíkur á áttunda áratugnum og fyrirliði íslenska landsliðsins um tíma, hefur starfað við þjálfun fyrir KSÍ í tæpa fjóra áratugi. „Það mun enginn skilja það til fullnustu hvað hann hefur gefið kvennalandsliðinu nema ég. En þannig er hann, hann hefur aldrei sóst eftir viðurkenningu á sínum störfum. Hann var kennari og köllun hans var að kenna fótbolta.“Pistilinn í heild sinni má sjá hér.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira