Mataræðið er mjög mikilvægt Ellý Ármanns skrifar 18. september 2013 16:15 Sara Gylfadóttir hjá JSB.
Viðtal okkar við fegurðardrottninguna Sóley Auði Mímisdóttur sem missti 20 kg á 18 vikum á námskeiði hjá JSB vakti vægast sagt mikla athygli á Lífinu í gær. Við forvitnuðumst um námskeiðin hjá leiðbeinandanum Söru Gylfadóttur. Segðu okkur stuttlega frá námskeiðinu? „Frá Toppi til táar (TT) námskeiðin eru fyrir konur sem vilja grennast, styrkjast, efla sjálsmyndina og almenna hreysti. Við höfum komið okkur upp mikilli reynslu í námskeiðshaldi af þessu tagi og hefur verið einstaklega ánægjulegt að fylgjast með árangrinum sem hefur náðst." „Við tökum á mataræði og almennum lifnaðarháttum á vikulegum fundum og fylgjumst vel með framförum og gangi mála hjá hverri og einni konu. Svo eru tímar þrisvar í viku þar sem við vinnum markvisst í því að auka líkamlegan styrk, þol og liðleika. Við leggjum ríka áherslu á að veita persónulega þjónustu og að konurnar finni að þær geti rætt málin í einlægni og trúnaði." Sóley fór á námskeið hjá JSB og missti 20 kg á 18 vikum. Stuttu síðar tók hún þátt í Ungfrú Ísland.Fyrir hverja eru þessi námskeið? „Námskeiðin eru fyrir konur á öllum aldri og bjóðum við úrval tíma frá morgni til kvölds. TT konur eru einnig með aðgang að opnum tímum og tækjasalnum þannig að úr nógu er að velja." „TT3-námskeiðin okkar eru svo sérsniðin fyrir stúlkur á aldursbilinu 14 til 25 ára. Við fáum m.a. sálfræðing til liðs við okkur sem tekur sérstaklega á markmiðssetningu á þessum námskeiðum. Það hefur verið mjög skemmtilegt að vinna með þessum hópi og mjög góður árangur náðst." „Langflestar konur sem sækja þessi námskeið eru komnar til að grennast og höfum við sérhæft okkur í að hjálpa þeim að ná því marki. Hins vegar finnst okkur alltaf jafn ánægjulegt að sjá hvað almenn vellíðan, hreysti og sjálfstraust þátttakenda eykst en það er heildarmarkmið okkar að aðstoða konur við að rækta sig svo að þær geti almennt lifað betra lífi." Hvað ráðleggur þú konum að gera sem vilja bæta lífstílinn og styrkja sig? „Mataræðið er mjög mikilvægt og þess vegna fá TT konurnar okkar ráðgjöf sem miðast við léttara og heilbrigðara mataræði sem skapar grunninn að heilbrigðu þyngdartapi. Ég ráðlegg konunum mínum að borða mat sem þeim finnst góður, ekki pína í sig eitthvað sem þeim finnst vont því að þá kemur sjálfsvorkunin og sælgætið verður oft mjög freistandi á þeim tímapunkti." „Dagleg hreyfing skiptir að sjálfsögðu miklu máli. Hreyfingin eykur vellíðan sem hjálpar manni áfram að hafa aga á mataræðinu. Ég mæli með því að að fara í röskan göngutúr þá daga sem ekki er farið á æfingu. Hann þarf ekki að vera meira en 10 - 15 mínútur. Svo má heldur ekki gleyma gleðinni því að það er staðreynd að með því að hreyfa sig með bros á vör þá fáum við meira út úr hreyfingunni og brennum meiru." Eitthvað að lokum? „Ef þú ert að hugasa um að breyta um lífstíl og auka lífsgæði þín þá tökum við vel á móti þér hjá JSB," segir Sara.Viðtalið við Sóley sem missti 20 kg.JSB.is Post by Lífið á Visir.is.
Heilsa Mest lesið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Lífið samstarf Fleiri fréttir Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Sjá meira