Hættu að væla - komdu þér í form Ellý Ármanns skrifar 28. ágúst 2013 15:00
Lífið hafði samband við Arnar Grant einkaþjálfara með meiru og framleiðanda og bað hann um heilsuráð sem vit er í fyrir lesendur Visis.Gerðu breytingar „Það er auðvelt að ná árangri en það er bara einn hængur á. Maður þarf að gera breytingar á sjálfum sér til að það gangi eftir. Oftast miklar breytingar," segir Arnar og heldur áfram: „Breytingum fylgir alltaf nokkur áhætta. Þegar litið er til líkamsræktar liggur helsta áhættan í því að maður byrji of snarpt, leggi of mikið á sig og líkaminn þoli ekki álagið. Þetta fer þó allt eftir því hvernig fólk er uppbyggt. Það er segja hvort fólk sé líkamlega og andlega nógu sterkt til að ráða við álagið," segir Arnar.Arnar Grant gefur lesendum Lífsins góð ráð.Ekki fara of geyst „Margir Íslendingar eru áhættusólgnir og fara allt of geyst í hlutina. Æfa tvisvar á dag og borða jafnvel of lítið. Og sumir taka jafnvel að birgja sig upp með fæðubótarefnum sem þeir hafa alls enga þörf fyrir og nýtast þeim ekki neitt. Svo eru það aðrir sem vilja breyta sér líkamlega: Fara í fitusog, svuntuaðgerð eða á heilsuhæli." „Besta leiðin að öllum breytingum er samt að fara hægt í sakirnar, gera litlar breytingar en varanlegar," segir Arnar.Það er vinna á bak við þessa vöðva.Ertu til í að koma með nokkur skotheld ráð fyrir byrjendur?Morgunmatur skiptir öllu Borða hollan og góðan morgunmat sem inniheldur prótein, kolvetni, góðar fitusýrur, vítamín og steinefni. Dæmi um morgunmat: Tvær lúkur af haframjöli, 20 rúsínur, Hámark helt yfir. ALLT Í EINNI fjölvítamín og omega fitusýrur. Vatnsdrykkjan er ekki síður mikilvæg Drekka vel af vatni. Eitt glas um leið og maður vaknar og eitt glas með öllum máltíðum. Heildar vatnsneysla dagsins ætti að ná að minnsta kosti tveim glösum (2ltr). Passa skammtana Hæfilegar skammtastærðir og ekki láta líða of langt á milli mála. Með því að borða á þriggja tima fresti heldur maður brennslunni við í líkamanum og blóðsykrinum stöðugum. Svo eru það millimálin Vera alltaf birgur af millimáltíðum. Dæmi um millimáltíðir: Hámark próteindrykkur, Hreysti/Kraftur/Styrkur prótein og trefja stykki, ávextir, hrökkbrauð með kotasælu og grænmeti. Bæ bæ sósur Ekki borða sósur, smjör og brasaðan mat. Og alls ekki mat sem er afgreiddur út um lúgu. Hreyfingin Gerðu æfingarnar, svitnaðu vel í 40-50 mínútur annanhvern dag. Fyrir hraðari árangur æfðu tvo daga og hvíldu einn, æfðu tvo og hvíldu einn og svo framvegis. Fyrir enn meiri árangur æfðu þrjá daga í röð og hvíldu einn, æfa þrjá, hvíla einn og svo framvegis.Æfðu heima 10 armbeygjur, 20 magaæfingar, 20 hnébeygjur með hendur beint fram, 20 hopp á staðnum. Byrjaðu á því að fylgja þessari rútinu einu sinni. Næsta dag tvisvar. Næsta dag þrisvar. Gott er að hvíla í 1-2 mínútur á milli umferða. Hver umferð ætti ekki að taka lengri tíma en 2 1/2 mínútu. Hvíldu þegar þreytan kallar Ef þú ert þreytt/ur eða með strengi hvíldu þá þann daginn. Veldu þér bara 2-3 atriði og þú sérð árangur innan skamms. Að ná árangri lyfir manni upp. Þá er maður stoltur og manni líður vel. Sjálfstraustið eykst og manni finnst það sem maður hefur afrekað hafi verið lítið mál eftir allt saman. Það er líka gaman að ná árangri og það geta allir náð árangri sem ná að breyta um stefnu. Það kostar ekki neitt nema viljann. Þó að allt annað blási á móti getur maður alltaf náð árangri í heilsurækt. Það er alltaf gaman og alltaf auðvelt ef maður bara byrjar. Ef maður bara byrjar og fer rólega í sakirnar.
Heilsa Mest lesið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Lífið samstarf Fleiri fréttir Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Sjá meira