Íslenski boltinn

Of Monsters and Men sendir kveðju til Stjörnunnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ein vinsælasta hljómsveit landsins Of Monsters and Men sendi í gær meistaraflokki karla í knattspyrnu stuðningskveðju fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Fram sem fram fer á Laugardalsvelli á laugardaginn.

Meðlimir hljómsveitarinnar eru dyggir stuðningsmenn Stjörnunnar en Arnar Rósenkranz Hilmarsson, trommari sveitarinnar, var á sínum tíma duglegur á trommunum með Silfurskeiðinni, stuðningsmannasveit Stjörnunnar.

Hér að ofan má sjá myndbrot af kveðjunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×