Grindavík og Fjölnir jöfn á toppi 1. deildar karla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. ágúst 2013 21:14 Jóhann Helgason. Mynd/Vilhelm
Grindavík og Fjölnir komust bæði upp fyrir Hauka með góðum sigrum í 1. deild karla í kvöld en Víkingar missti niður tveggja marka forystu á Ólafsfirði. Fjölnir vann 4-1 sigur á Haukum sem voru á toppnum fyrir leiki kvöldsins. Jóhann Helgason kom Grindavík á toppinn þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-0 sigri á Tindastól á Sauðárkróki. Þetta var langþráður sigur hjá Grindavík enda liðið búið að spila fjóra leiki í röð án þess að ná að fagna sigri. Grindavík er með jafnmörg stig og Fjölnir en betri markatölu. Aron Sigurðarson skoraði tvö mörk og Guðmundur Böðvar Guðjónsson það fyrsta strax á annarri mínútu leiksins þegar Fjölnir vann 4-1 sigur á Haukum í Grafarvogi. Sigurbjörn Örn Hreiðarsson minnkaði muninn undir lokin en Ragnar Leósson, nýkomin frá ÍBV, átti lokaorðið þegar hann innsiglaði sigur Fjölnismanna. Igor Taskovic og Aron Elís Þrándarson komu Víkingum í 2-0 á móti KF á Ólafsfjarðarvelli en Teitur og Halldór Logi Hilmarsson tryggðu heimamönnum stig. Víkingar náðu ekki að nýta sér að vera manni fleiri síðustu þrettán mínútur leiksins. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar af bæði úrslit.net og ksí.is.Úrslit og markaskorarar í 1. deild karla í kvöld:Fjölnir - Haukar 4-1 1-0 Guðmundur Böðvar Guðjónsson (2.), 2-0 Aron Sigurðarson (51.), 3-0 Aron Sigurðarson (60.), 3-1 Sigurbjörn Örn Hreiðarsson (89.), 4-1 Ragnar Leósson (90.).KF - Víkingur R. 2-2 0-1 Igor Taskovic (12.), 0-2 Aron Elís Þrándarson (64.), 1-2 Teitur Pétursson (65.), 2-2 Halldór Logi Hilmarsson (70.).Tindastóll - Grindavík 0-2 0-1 Jóhann Helgason (41.), 0-2 Jóhann Helgason (69.).
Íslenski boltinn Mest lesið Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira