Haukar unnu Djúpmenn í ótrúlegum sjö marka leik Stefán Árni Pálsson skrifar 6. júlí 2013 16:00 mynd / vilhelm
Haukar og BÍ/Bolungarvík mættust í mögnuðum leik að Ásvöllum í 1. deild karla í knattspyrnu í dag en leikurinn endaði 4-3 fyrir Hauka. Sigurmarkið koma í uppbótartíma eftir að Haukar höfðu lent 3-1 undir. Heimamenn hófu leikinn vel og komust yfir eftir rúmlega tíu mínútna leik þegar Hilmar Rafn Emilsson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Hauka. Gestirnir að vestan urðu fyrir því áfalli að missa mann af velli eftir hálftíma leik þegar Nigel Quashie var rekinn af velli með rautt spjald eftir að hafa brotið á Ásgeiri Þór Ingólfssyni. Í upphafi síaðri hálfleiksins náðu samt sem áður gestirnir að jafna metin þegar Hafsteinn Rúnar Helgason kom boltanum í netið. Aðeins fjórum mínútum síðar náði BÍ/Bolungarvík að komast yfir en þar var að verki Andri Rúnar Bjarnason úr langskoti. Þegar um tuttugu mínútur voru eftir af leiknum skoruðu síðan Djúpmenn þriðja mark sitt í leiknum og voru komnir tveimur mörkum yfir, 3-1. Nokkrum mínútum síðar náðu Haukar að minnka muninn Brynjar Benediktsson kom boltanum í netið. Tíu mínútum fyrir leikslok náði síðan Hilmar Rafn Emilsson að jafna metin og sex mörk kominn í leikinn. Eftir ótrúlegar lokamínútur voru það Haukamenn sem náðu að tryggja sér sigurinn í leiknum þegar Andri Steinn Birgisson skoraði sigurmarkið þegar þrjár mínútur voru komnar framyfir venjulegan leiktíma. Ótrúlegur leikur á ferðinni í Hafnafirðinum. Haukar eru í öðru sæti deildarinnar með 18 stig en BÍ/Bolungarvík er í því fjórða með 15. Upplýsingar fengnar frá www.urslit.net
Íslenski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira