Ríkustu Rússarnir fela auð sinn á aflandseyjum 2. maí 2013 09:36
Alisher Usmanov auðugasti maður Rússlands færði stjórnina á 20 milljarða dollara auðæfum sínum til eignarhaldsfélags á Bresku Jómfrúreyjum í desember á síðasta ári, en þær eru í tæplega 9.000 kílómetra frá Moskvu. Þannig hefst ítarleg grein í Financial Post um að 20 auðugustu menn í Rússlandi fela allir auð sinn á aflandseyjum eða í eignarhaldsfélögum á Kýpur. Hvað fyrrgreindan Usmanov varðar er verðmætasta eign hans USM Holdings, sem á stærstu járnnámur Rússlands, skráð í gegnum tvö eignarhaldsfélög á Kýpur sem svo aftur er stjórnað frá Bresku Jómfrúreyjum. Valery Tutkhin lögmaður í Genf, sem sérhæfir sig í stjórn fjármuna fyrir auðmenn, segir í samtali við Financial Post að rússnesku auðmennirnir setji fjármuni sína í félög á aflandseyjum til að forðast að greiða af þeim skatta í Rússlandi og til að skýla fyrir samkeppni og árásum af hendi annarra Rússa. Meðal þeirra rússnesku auðmanna sem fjallað er um má nefna Viktor Vekselberg sem hefur staðsett megnið af 14,4 milljarða dollara auði sínum í eignarhaldsfélaginu Renova Holdings sem skráð er á Bahamaeyjum. Meðal eigna hans er 7% hlutur í Rusal, stærsta álframleiðenda heimsins. Þá má einnig nefna Vladimir Lisin en hann hefur staðsett 85% eign sína í Novolipetsk Steel í félagi á Kýpur en um er að ræða verðmætasta stálframleiðenda Rússlands.Pútin vill fá fjármunina heim Nær allir rússnesku auðmennirnir sem fjallað er um í greininni sköpuðu auð sinn eftir að Boris Jeltsin komst til valda í Rússlandi á síðasta áratug síðustu aldar. Mikil spilling ríkti í tíð Jeltsin og gátu auðmennirnir sölsað undir sig öll verðmætustu fyrirtæki Rússlands á valdatíð hans. Vladimir Putin forseti Rússlands hefur heitið því að ná aftur til Rússlands hluta af þeim auðæfum sem fyrrgreindir menn hafa flutt úr landi. Putin er orðinn æðsti stjórnandi stofnunnar sem ætlað er að berjast gegn peningaþvætti. Ætlunin er að nota hana til að ná einhverju af fjármunum þessum til baka í ríkissjóð Rússlands.Íslensk tengingAlisher Usmanov kemur við sögu í rannsóknarskýrslu Alþingis, en gögn eru til um fyrirhugaðar lánveitingar upp á 280 milljarða króna sem hann gat fengið hjá Kaupþingi haustið 2008 rétt fyrir hrun bankans. Engar skýringar hafa fengist á þessum fyrirhuguðu lánveitingum. Þegar Usmanov komst í fréttirnar hérlendis síðast í fyrra sagði Guðmundur Ólafsson hagfræðingur og sérfræðingur um rússnesk málefni m.a. að Usmanov hafi ekki verið annað en handrukkari fyrir olíurisann Gazprom hér á árum áður. Í umfjöllun Wikipedia um Usmanov kemur fram að hann sat um sex ára skeið á níunda áratug síðustu aldar í fangelsi í Úsbekistan eftir að hafa verið dæmdur fyrir mútur og fjárkúgun. Dómur hans hljóðaði upp á átta ára harða refsivist í þrælkunarbúðum. Hann afplánaði sex ár.
Mest lesið „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Viðskipti innlent Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Kjartan Hansson ráðinn forstöðumaður hjá Origo Viðskipti innlent Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Viðskipti erlent Nýtt trend: Sami stjórnandinn að vinna fyrir mörg fyrirtæki Atvinnulíf Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Að líða ömurlega í andrúmslofti jákvæðrar sálfræði Atvinnulíf Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Viðskipti innlent Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Fleiri fréttir Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira