Aðeins þremur liðum hefur verið sópað út úr lokaúrslitunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2013 12:45 Mynd/Daníel
Haukar taka á móti Fram í dag í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í N1 deild karla í handbolta. Fram getur þarna unnið þriðja leikinn í röð í einvíginu og tryggt sér þar með Íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn fer fram á Ásvöllum, hefst klukkan 15.00 og verður í beinni textalýsingu hér á Vísi. Vinni Fram í dag þá yrði það annað árið í röð sem úrslitaeinvígið vinnst 3-0 og Haukamenn fengju þá jafnframt að kynnast því sem nágrannar þeirra í FH upplifðu í fyrra sem er að vinna ekki leik í úrslitaeinvíginu þrátt fyrir að vera með heimavallarrétt. Aðeins tveimur öðrum félögum hefur verið sópað út úr lokaúrslitunum en Haukar unnu 3-0 sigur á Val og ÍBV árin 2004 og 2005. Valur og ÍBV voru hinsvegar ekki með heimavallarrétt í þessum einvígum. Fjórum liðum hefur tekist að minnka muninn í 2-1 eftir að hafa lent 2-0 undir í úrslitaeinvígi úrslitakeppni karla en aðeins einu þeirra (KA 2002) tókst að vinna þrjá leiki í röð og tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. KA lenti þá 2-0 undir á móti Val en vann þrjá síðustu leikina, þar af tvo þeirra á heimavelli Vals. Öll hin þrjú liðin unnu leik þrjú en töpuðu síðan einvíginu í næsta leik á eftir.Sóp í lokaúrslitum í karlahandboltanum: 2012: FH-HK 0-3 (23-26, 26-29, 26-28) 2005: Haukar-ÍBV 3-0 (31-30, 39-35, 28-24) 2004: Haukar-Valur (33-28, 29-23, 33-31)Lið sem hafa lent 2-0 undir í lokaúrslitum í karlahandboltanum: 1996: KA* á móti Val - tapaði 1-3 1998: Fram* á móti Val - tapaði 1-3 2002: KA á móti Val - vann 3-2 2004: Valur á móti Haukum - tapaði 0-3 2005: ÍBV á móti Haukum - tapaði 0-3 2011: Akureyri* á móti FH - tapaði 1-3 2012: FH* á móti HK - tapaði 0-3* Var með heimavallarrétt
Olís-deild karla Mest lesið Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Íslenski boltinn KR - Valur | Eiga harma að hefna í Reykjavíkurslag Íslenski boltinn Stjarnan - Víkingur R. | Toppliðið mætir Stjörnunni sem hefur skinið skærar Íslenski boltinn Verður Aron þjálfari FH? Handbolti Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Íslenski boltinn Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Tilkynnti nýjan samning í miðri skrúðgöngu og verður launahæst í heimi Fótbolti „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Íslenski boltinn City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn Danskur skúrkur og Wolfsburg fallið í fyrsta sinn í 30 ár Fótbolti Fleiri fréttir Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Sjá meira