McLaren P1 að seljast upp 7. maí 2013 14:45
Verður framleiddur í 375 eintökum og aðeins 100 eftir. Ef einhver var að hugleiða kaup á nýja McLaren P1 bílnum er rétt að benda þeim sama á að hafa hraðar hendur því aðeins eru 100 bílar seldir af áætlaðri 375 bíla framleiðslu hans. Flestir þeirra hafa selst í Miðausturlöndum, Bandaríkjunum og Evrópu. Bíllinn er 903 hestöfl og kemst því aðeins áfram en er líklega ekki mjög hentugur á íslenskum malarvegum. Öll þessi hestöfl fær hann úr 3,8 lítra V8 bensínvél með tveimur forþjöppum, en einnig öflugum rafhlöðum og er hann því tvinnbíll. Bíllinn kostar 1,15 milljón dollara í Bandaríkjunum, eða 134 milljónir króna, en myndi fá talsvert hærri verðmiða hérlendis vegna þeirra vörugjalda og virðisaukaskatts sem ofaná smyrst. Rafhlöður bílsins má hlaða með venjulegu heimilisrafmagni og kemst hann fyrstu 10 kílómetrana á því einu saman.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Erlent „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Innlent Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? Innlent