Birti síðustu orð sonarins 13. apríl 2013 12:45 Í miðri setnigu, þeirri síðustu!
Vill með því vekja fólk til umhugsunar um hve hættulegt er að senda textaskilaboð í akstri. Foreldrar 22 ára gamals pilts sem dó í bílslysi fyrir stuttu í Colorado í Bandaríkjunum hafa ákveðið að birta mynd af síma hans sem sínir að hin raunverulega ástæða dauða hans er að hann var að skrifa vini sínum textaskilaboð. Það varð til þess að hann missti stjórn á bíl sínum og hann valt nokkra hringi með þessum sorglega afleiðingum. Með birtingunni vilja foreldrarnir vekja fólk til umhugsunar um hversu hættulegt það getur verið að taka athyglina af akstrinum. Sími piltsins fannst í bílnum og á skjá hans blasti við að hann var í miðri setningu við textaskrif á símanum. Móðir piltsins sagði að hún gæti ekki umborið þá tilhugsun að fleiri láti lífið af slíkum orsökum og því beri henni nánast skilda að sýna umheiminum hver orsök dauða sonar hennar var. Með því gæti hún að forðað sem flestum frá þeim dapurlegu örlögum. Hetjulega gert og þörf áminning til allra ökumanna.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent