BMW aldrifsbílar í öndvegi Finnur Thorlacius skrifar 5. apríl 2013 08:45
Nýir X1, X3 og X6 sýndir, auk X5 jeppans og allir til prufu. Í sýningarsal BL verður efnt til xDrive bílasýningar á morgun, laugardag. Þar verður öllum nýju jeppunum frá BMW stillt á stall og boðið upp á líflega bílasýningu með reynsluakstri og öllu tilheyrandi. Nýr BMW X1, BMW X3 dísil sem notar aðeins 5,6 lítra á hundraðið og 306 hestafla, tveggja túrbínu BMW X6 dísilbíll verða sýndir og prófaðir. BMW X1 jepplingurinn sem kostar frá 5.290.000 krónum verður sýndur í nýrri útgáfu og í nýjum litum. BMW X3 með einni sparneytnustu dísilvél í sýnum flokki verður þar einnig og í fleiri en einni útgáfu. Hann kostar frá 7.590.000 krónum. BMW X5 í Modern-line útgáfu er hlaðinn aukabúnaði á sérstöku tilboðsverði á meðan birgðir endast. BMW X5 Modern-line kostar 12.690.000 krónur. BMW X6 með 306 hestafla dísilvél er sportlegur fjórhjóladrifinn lúxusbíll sem sameinar útlit sportbíls og jeppa. Auk þessara fjórhjóladrifnu BMW bíla sem allir eru búnir xDrive fjórhjóladrifsbúnaði verða nýju gerðirnar af 3 línunni og 1 línunni einnig til sýnis og reynsluaksturs. Sýningin verður opin á laugardag milli klukkan 12 og 16.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent