Formúla 1

Vettel segir Red Bull búið að leysa vandann

Birgir Þór Harðarson skrifar
Vettel umkringdur blaða og fréttamönnum í Malasíu í dag.
Vettel umkringdur blaða og fréttamönnum í Malasíu í dag.
Heimsmeistarinn Sebastian Vettel segir dekkjavandræði Red Bull-liðsins ekki verða þeim að falli í Malasíu eins og í Ástralíu. RB9-bíllinn muni fara betur með dekkin um helgina.

Þeir Vettel og Mark Webber voru lang fljótastir fyrir Red Bull-liðið á æfingum fyrir ástralska kappaksturinn um síðustu helgi og náðu bestu tímum í tímatökunni. Í kappakstrinum náðu þeir hins vegar ekki að halda lífi í dekkjunum nógu lengi svo þeir féllu í þriðja og sjötta sæti.

Vettel segist ekki hafa talið sigurinn vísan eftir mikinn hraða á æfingum og í tímatökum en að dekkjavandræðin hafi komið á óvart í keppninni. „Maður fer ekki í keppni með það í huga að hún sé unnin. Þetta er ekki svo einfalt."

„Við eygðum möguleika á sigri en vandræðin í keppninni komu aftan að okkur," sagði Vettel í Malasíu í dag. „Venjulega er ekki hægt að breyta uppsetningu bílsins fyrir keppni á sunndag svo við höfum í mörg horn að líta á föstudegi og laugardegi. Við lærðum helling í Ástralíu en það eru enn hlutir sem við skiljum ekki alveg. Það hafa auðvitað aðeins liðið örfáir dagar."

Heimsmeistarinn segir að það sé mjög lítið sem ökumenn geta gert til að takmarka slit dekkjanna í keppninni. Það ráði uppsetning bílsins og aðrar ytri aðstæður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×