Komast leiðar sinnar á blikkandi sjúkrabílum. Finnur Thorlacius skrifar 26. mars 2013 12:30 Að utan eins og sjúkrabíll en að innan eins og lúxuskerra
Eru innréttaðir eins og sannir lúxusbílar. Hver hefur ekki oft óskað sér í þungri umferð þar sem ekkert gengur að komast áfram að setja bara upp sjúkrabílaljós og kveikja á sírenunni og láta alla aðra víkja fyrir sér. Sem betur fer er þetta ekki hægt víða, en þetta er greinilega hægt í Rússlandi, hvar annarsstaðar. Þar leigja ofurríkir Rússar sér bíla sem gerðir hafa verið eins í útliti og venjulegir sjúkrabílar. Vegna þessa hafa lögreglumenn verið beðnir að rannsaka sjúkrabíla á götum Moskvu með reglulegum hætti til að stöðva þessa starfsemi. Þessir fals-sjúkrabílar eru alls ekki ódýrir í leigu og kosta 200 dollar á hvern klukkutíma, eða um 25.000 krónur. Það þarf þó ekki að sitja í sjúkrabörum eða á bekkjum í bílunum því þeir hafa verið útbúnir eins og sannir lúxusbílar svo leigjendur þeirra geti borðað kavíarinn sinn og drukkið kampavín með í eðlilegu umhverfi.
Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Innlent „Þetta er ekkert grín“ Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið Innlent Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma Innlent