KSÍ er 66 ára í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. mars 2013 11:00 Mynd/Vilhelm
Í dag eru 66 ár liðin síðan að fjórtán félög og íþróttabandalög stofnuðu Knattspyrnusamband Íslands 26. mars 1947. KSÍ minnist þessara tímamóta á heimasíðu sinni í dag. Agnar Klemens Jónsson var fyrsti formaður KSÍ en núverandi formaður, Geir Þorsteinsson, er sá áttundi í röðinni. Geir tók við af Eggerti Magnússyni árið 2007. Þegar haldið var upp á 50 ára afmæli KSÍ árið 1997 var gefin út bókin "Knattspyrna í heila öld" eftir þá Víði Sigurðsson og Sigurð A. Friðþjófsson. Í þeirri bók er þannig sagt frá stofnun KSÍ: Stofnfundurinn var haldinn við Vonarstræti í Reykjavík (mynd), þar sem umhverfisráðuneytið er nú til húsa. Fimmtán fulltrúar frá tólf félögum mættu á fundinn; Fram, KR, Víkingi og Val úr Reykjavík, Haukum og FH úr Hafnarfirði, Kára og KA frá Akranesi, Þór og KA frá Akureyri og Þór og Tý frá Vestmannaeyjum. Auk þess óskuðu Íþróttabandalag Ísafjarðar og Íþróttabandalag Siglufjarðar eftir því að taka þátt í stofnun KSÍ, en þau gátu ekki sent fulltrúa á fundinn. Alls voru því félög og íþróttabandalög sem áttu aðild að KSÍ frá byrjun 14 talsins. Íslenska 21 árs landsliðið getur fært KSÍ afmælisgjöf í dag því strákarnir mæta liði Hvíta Rússlands í dag í fyrsta leiknum í riðlakeppni EM 2015. Leikið verður á Torpedo vellinum í Minsk og hefst leikurinn klukkan 13.00 að íslenskum tíma.
Íslenski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira