Volkswagen Golf bíll ársins í heiminum Finnur Thorlacius skrifar 29. mars 2013 08:45 Volkswagen Golf er bíll ársins í Evrópu og heiminum öllum
Porsche Boxter/Cayman valinn sportbíll ársins, Tesla Model S grænasti bíllinn og Jaguar F-Type sá best hannaði. Margir hafa beðið eftir krýningu á bíl ársins í heiminum en á bílasýningunni í Genf fyrr í þessum mánuði hlotnaðis Volkswagen Golf titillinn bíll ársins í Evrópu. Því var sá bíll harla líklegur til að hljóta heimsnafnbótina bíll ársins og það varð raunin. Voru verðlaunin afhent á bílasýningunni í New York sem er nýhafin. Er þetta annað árið í röð sem Volkswagen hlotnast þessi heiður en Volkswagen Up! vann í fyrra. Það voru 66 bílablaðamenn sem völdu bílinn nú og voru þessir 10 bílar um hituna; Audi A3, Range Rover, Mazda6, Mercedes Benz A-Class, Peugeot 208, Porsche Boxter/Cayman, Subaru BRZ/Toyota GT86, Volvo V40 og Volkswagen Golf. Einnig var tilkynnt um titilinn "World Performance Car" og þar verð hlutskarpastur Porsche Boxter og Cayman. Þeir bræður höfðu betur gegn bílunum Aston Martin Vanquish, Audi RS5, BMW M6, BMW M135i, Ferrari F12 Berlinetta, Mercedes Benz SL63 AMG, Mercedes Benz SLS AMG Roadster, Renault Clio Sport og Subaru BRZ/Toyota GT86. Titilinn "World Green Car" hlaut Tesla Model S og hafði sigur gegn bílunum Renault Zeo, Smart ForTwo Electric Drive, Volkswagen Jetta Hybrid og Volvo V60 Plug-In Hybrid Diesel. Verðlaunin "World Car Design" komu í skaut Jaguar F-Type og hafði hann betur gegn bílum eins og Aston Martin Vanquish, Renault Clio, Range Rover, Mazda6 og Volkswagen Golf.
Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Innlent „Þetta er ekkert grín“ Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið Innlent Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma Innlent