Tíska og hönnun

11 milljarða hús fær upplyftingu

Spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey er búin að ráða hönnuðinn Rose Tarlow til að taka ellefu milljarða króna heimili sitt í Montecito í Kaliforníu í yfirhalningu.

Opruh langar að gera heimili sitt huggulegra en hún eyddi miklum tíma í að gera það fullkomið. Nú hefur hún gert sér grein fyrir því að það hentar ekki lífsstíl hennar.

Gulir veggir.
"Speglarnir, marmarinn og teppin – þetta er allt mjög ríkmannlegt en ekki ég. Þannig er því á botninn hvolft: það sem hefur vantað á fallegu staðina sem ég hef búið á um ævina er ég!" skrifar Oprah í tímarit sitt O, The Oprah Magazine.

Ríkmannlegt.
Oprah vonast til þess að yfirhalningin taki þrjá mánuði og deilir myndum af heimilinu eins og það er í dag með lesendum O.

Ein ríkasta kona í heimi.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×