Ég er búinn leita að persónunni sem trúir því að við getum greitt þá nokkur hundruð milljarða (miðað skuldirnar sem eru á gjalddaga í erlendri mynt á þessu árabili, fyrir utan þrotabúin) sem eru á gjalddaga á fyrrnefndu tímabili en finn hana ekki. Enginn segir að þetta ætti að geta gengið upp, en margir segjast vona að ódýrt erlent lánsfé muni bjarga okkur. Óbreytt staða þýðir þrot, um það eru allir sammála sem ég hef talað við. Það er svolítið óhuggulegt að hlusta á svartnættisspár, en við Íslendingar erum brenndir af því að taka ekki mark á þeim.
Seðlabankinn er búinn að segja það að Landsbankinn sé ekki greiðslufær í erlendri mynt miðað við óbreytta stöðu. Samkvæmt lögum ætti Fjármálaeftirlitið, sem hefur aðstoðarseðlabankastjórann í stjórn, í það minnsta að vera búið að fá tilkynningar um þetta frá Landsbankanum.
Opinberar skuldir á Íslandi eru þær fimmtu hæstu í Evrópu, tæplega 100 prósent af landsframleiðslu, um 1.600 milljarðar. Þriðjungur þeirra er í erlendri mynt, sem gerir stöðuna alvarlega í ljósi þess að við erum ekki að búa til nægilega mikið af gjaldeyristekjum til þess að geta staðið undir greiðslubyrðinni.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, en gamla góða kallið frá áhorfendabekkjunum til þeirra sem eru að taka þátt í kappleikjum, hjálpar kannski stjórnmálamönnunum, og öllum þeim sem eru að reyna leysa úr erfiðri stöðu, eitthvað. „Áfram, þetta er ekki búið."
