Með hækkandi sól Katrín Júlíusdóttir skrifar 27. desember 2012 06:00 Daginn er tekið að lengja að nýju. Smátt og smátt hækkar sólin á lofti svo birtir yfir. En víðar rofar til. Á dögunum samþykkti Alþingi fjárlög fyrir árið 2013. Við höfum þurft að taka mjög erfiðar ákvarðanir um niðurskurð og tekjuöflun til þess að stöðva skuldasöfnun. Stærsti einstaki liður fjárlagafrumvarpsins er vaxtagreiðslur. Við viljum nýta fjármunina sem fara í þetta í menntun og velferð en ráðstafanir síðustu ára hafa miðað að því að slíkt verði gerlegt sem fyrst. Við höfum tekið skref í rétta átt og horfum því til sólar.Festa lykilatriði Með stöðvun skuldasöfnunar ríkissjóðs búum við í haginn fyrir endurgreiðslu skulda. Festa og jafnvægi í ríkisfjármálum eru lykilatriði í að viðhalda fjármálastöðugleika, auka traust og tryggja þannig aðgengi að nauðsynlegri endurfjármögnun. Um leið er þetta mikilvægur liður í því að gera okkur kleift að losa fjármagnshöftin. Frumjöfnuður í rekstri ríkisins árið 2012 var meðal þeirra skýru markmiða sem sett voru varðandi afkomu ríkissjóðs eftir hrun. Þá hefur verið stefnt að því að heildarjöfnuður, þegar vaxtajöfnuður er meðtalinn, verði orðinn jákvæður á árinu 2014. Stór áfangi er í augsýn í að stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs, ná niður vaxtakostnaði og treysta grunn velferðarsamfélagsins til framtíðar. Aðgerðir til að ná þessu markmiði hafa verið blönduð leið tekjuöflunar og útgjaldalækkunar, sem var forsenda þess að markmiðum stjórnvalda um félagslegan jöfnuð yrði náð. Árangurinn af þessu er býsna góður og hefur vakið athygli út fyrir landsteinana. Það er ekki síst fyrir þá sök að á aðhaldstímum hefur tekist að minnka atvinnuleysi. Um mitt ár 2009 var það um 9% en var komið niður í 5% á seinnihluta þessa árs. Þá hefur vakið eftirtekt að á Íslandi hefur þrátt fyrir efnahagshrunið tekist að standa vörð um grunnstoðir velferðarkerfisins og hag þeirra sem bjuggu við lökust kjör.Fjárfestingaáætlun til góðs Nýsamþykkt fjárlög og lög um ráðstafanir í ríkisfjármálum taka mið af þeirri nauðsyn sem örvun fjárfestingar er. Um mikilvægi hennar á Íslandi þarf ekki að fjölyrða. Einkum er nauðsynlegt að auka atvinnuvegafjárfestingu og leggja þannig grunn að verðmætasköpun og jákvæðum gjaldeyrisjöfnuði til frambúðar. Ráðgjafafyrirtækið McKinsey benti á í nýlegri skýrslu um vaxtarleið fyrir Ísland, að sérstaka rækt yrði að leggja við alþjóðageirann, sem er sá hluti atvinnulífsins sem byggir ekki síst á virkjun hugvits í alþjóðlegri samkeppni. Vexti mikilvægustu auðlindagreina okkar eru náttúruleg takmörk sett svo til framtíðar þurfum við í auknum mæli að reiða okkur á fyrrnefndan alþjóðageira. Af þessu hefur stefna ríkisstjórnarinnar tekið mið og hennar sér stað í nýsamþykktum fjárlögum. Fjárfestingaáætlun sem er hluti af fjárlagagerð næsta árs byggist meðal annars á því að við nýtum hluta auðlindaarðs þjóðarinnar til eflingar innviða og uppbyggingar atvinnulífs. Tækniþróunarsjóður og Rannsóknasjóður er efldur um 750 milljónir króna á ári. Þá renna um 500 milljónir til markáætlana sem gefa fjölmörgum frumkvöðlum og nýsköpunarfyrirtækjum tækifæri til að þróa verðmæta vöru og þjónustu. Enn fremur renna 500 milljónir króna í græna hagkerfið, en þar eru mörg sóknarfæri til framtíðar, og 200 milljónir fara í að styðja fyrirtæki við að þróa umhverfisvænni lausnir. Þarna eru brýn verkefni á ferð enda skapast með þessu ný störf og verðmæti. Jafnframt er hafið ferli til lækkunar launatengdra gjalda með lækkun tryggingagjalds.Hugað að barnafjölskyldum Ein mikilvægustu tíðindin í nýsamþykktum fjárlögum eru þau að áfram er forgangsraðað í þágu bættra kjara hópa sem mest þurfa á að halda. Bættur hagur barnafjölskyldna er í fyrirrúmi, enda hafa greiningar á stöðu barnafjölskyldna sýnt að rík þörf er á að huga að kjörum þessa hóps og tryggja velferð barna til framtíðar. Alls verður um fjórum og hálfum milljarði króna varið til hækkunar barnabóta og framlengingar sérstakrar hækkunar vaxtabóta. Í kjölfar þessarar hækkunar munu um 11 milljarðar renna til barnafjölskyldna á næsta ári.Endurnýjunarþróttur Það er ánægjulegt að geta haldið jólahátíðina og fagnað um leið þeim áfanga sem við erum að ná í að vinna úr afleiðingum hruns fjármálakerfisins. Við sjáum dæmi um endurnýjunarþrótt atvinnulífsins í nýjum greinum sem hafa verið að vaxa og dafna. Næstu verkefni okkar eru að fylgja þessum árangri eftir svo við náum markmiðum efnahagsáætlunar ríkisstjórnarinnar um jöfnuð og afgang í ríkisfjármálum á næstu árum, aukna verðmætasköpun í atvinnulífinu, fjölgun starfa og bættan hag heimilanna. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Katrín Júlíusdóttir Mest lesið Tala aldrei um annað en vextina Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Akranes hefur vaxið hratt – nú er tími til að hlúa að fólkinu Liv Åse Skarstad Skoðun Er íslenskan sjálfsagt mál? Logi Einarsson Skoðun Stefán Einar og helfarirnar Hjálmtýr Heiðdal Skoðun 96,7 prósent spila án vandkvæða Sigurður G. Guðjónsson Skoðun 109 milljarða kostnaður sem fyrirtækin greiða ekki Sigurpáll Ingibergsson Skoðun Þeytivinda í sundlaugina og börnin að heiman Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Hver ákveður hver tilheyrir – og hvenær? Jasmina Vajzović Skoðun Smiðurinn, spegillinn og brunarústirnar Davíð Bergmann Skoðun Manstu eftir Nagorno-Karabakh? Birgir Þórarinsson Skoðun Skoðun Skoðun Er kominn skrekkur í fullorðna fólkið? Steinar Bragi Sigurjónsson skrifar Skoðun Húsnæði fyrir fólk en ekki fjárfesta Hilmar Harðarson skrifar Skoðun Manstu eftir Nagorno-Karabakh? Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun 96,7 prósent spila án vandkvæða Sigurður G. Guðjónsson skrifar Skoðun Smiðurinn, spegillinn og brunarústirnar Davíð Bergmann skrifar Skoðun 109 milljarða kostnaður sem fyrirtækin greiða ekki Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Hver ákveður hver tilheyrir – og hvenær? Jasmina Vajzović skrifar Skoðun Er íslenskan sjálfsagt mál? Logi Einarsson skrifar Skoðun Stafræn sjálfstæðisbarátta Íslands á 21. öldinni. Tungan, sagan og menningin undir Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Tala aldrei um annað en vextina Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Akranes hefur vaxið hratt – nú er tími til að hlúa að fólkinu Liv Åse Skarstad skrifar Skoðun Þeytivinda í sundlaugina og börnin að heiman Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Enga skammsýni í skammdeginu Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Þegar barn verður fyrir kynferðisofbeldi Indíana Rós Ægisdóttir skrifar Skoðun Skattfrjáls ráðstöfun séreignarsparnaðar – fyrir alla! Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Stefán Einar og helfarirnar Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Bréf til varnar Hamlet eftir Kolfinnu Nikulásdóttur Björg Steinunn Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skaðabótalög – tímabærar breytingar Styrmir Gunnarsson,Sveinbjörn Claessen skrifar Skoðun Hvers vegna? Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Fúsk við mannvirkjagerð þarf ekki að viðgangast Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Reykjalundur á tímamótum Sveinn Guðmundsson skrifar Skoðun Bættar samgöngur og betra samfélag í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Áhyggjur af breytingum á eftirliti með mannvirkjagerð og faggilding Ágúst Jónsson skrifar Skoðun Snjall notandi, snjallari gervigreind Agnar Burgess skrifar Skoðun Ráð gegn óhugsandi áhættu Hafsteinn Hauksson,Reynir Smári Atlason skrifar Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason skrifar Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Stafræn sjálfstæðisbarátta Íslands á 21. öldinni. Tungan, sagan og menningin undir Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar