„Eitt er algjörlega bráðnauðsynlegt á mínum jólum en það er heimatilbúna rauðkálið," segir Ragnheiður Eiríksdóttir, framkvæmdastjóri Knitting Iceland, þegar hún er spurð hvort eitthvað megi alls ekki vanta á jólaborðið.
„Ég ólst upp við skagfirsk jól, rjúpur með rauðkáli og brúnuðum kartöflum hjá ömmu og afa. Amma mín, Ragnheiður Bjarman, var snillingur í matargerð og kenndi mér ýmislegt sem kemur að góðum notum í eldhúsinu.
Ég geri rauðkálið eins og hún, án uppskriftar en alltaf sama hráefnið, með miklu tilsmakki og á löngum tíma. Ég hef borðað rjúpur, hangikjöt, hamborgarhrygg, kalkúna og hjört á jólum en alltaf gert rauðkálið, mér finnst það eiginlega henta með öllu.
Rauðkál úr krukku eða dós er harðbannað í mínum húsum sem er reyndar örlítil hræsni því grænar baunir frá Ora eru aldeilis velkomnar á mitt veisluborð."
- rat
Ragnheiðarrauðkál
