Leikur ný lög á Flóru 20. júní 2012 11:00 Ólöf spilar á flest hljóðfæri nýju laganna sem eru væntanleg með haustinu. Eftir útgáfuna mun hún spila í Evrópu, Ástralíu, Bandaríkjunum og Japan. „
Ég spila á flest hljóðfæri á nýju plötunni,“ segir Ólöf Arnalds sem leikur lög af væntanlegri breiðskífu sinni, Sudden Elavation, í bland við tónsmíðar af fyrri plötum og eftir aðra tónlistarmenn á tvennum tónleikum á Café Flóru í Grasagarðinum á morgun og hinn. Nýja platan er væntaleg með haustinu og stýrir Skúli Sverrisson, bassaleikari og tónskáld, upptökum hennar og verður henni til halds og traust í Grasagarðinum. Tilefni tónleikanna er sumarsólstöður og fylgir hún þar með eftir sumar- og vetrarsólstöðutónleikum sínum á síðasta ári. „Platan verður öll á ensku, það er breyting frá fyrri plötunum en annars er ég að fara dýpra inn í þá fagurfræði sem ég hef verið að búa til í nokkur ár. Þetta eru stærri útsetningar en ég hef gert áður,“ segir Ólöf sem spilar á ýmsa gítara, strengi og syngur margar raddir í nýju verkunum. Upptökum plötunnar er lokið en hún er væntanleg í október. Á sama tíma koma út þrjár smáskífur með b-hliðum frá Ólöfu, sem hafa að geyma ábreiður. „Ábreiða fyrstu smáskífunnar verður Mr. Tambourine Man eftir Bob Dylan,“ segir Ólöf sem leggur land undir fót í haust. „Ég mun setjast aftur upp í flugvélina og spila víðsvegar um Evrópu, Bandaríkin, Ástralíu og Japan á næsta einu og hálfa árinu.“-hþt
Tónlist Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Meryl Streep verður Joni Mitchell Bíó og sjónvarp Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið X-ið bætir við sig Bolla Lífið Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Tónlist Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira