Farsaskrímslið snýr aftur Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 11. apríl 2012 20:00
Bíó. Carnage. Leikstjórn: Roman Polanski. Leikarar: Jodie Foster, John C. Reilly, Kate Winslet, Christoph Waltz. Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hittast í heimboði til að ræða málin en andrúmsloftið er þvingað og siðprýði fullorðna fólksins ristir ekki sérlega djúpt. Fyrr en varir er allt komið í háaloft og ásakanirnar fljúga þvert yfir betri stofuna ásamt túlípönum og ælu. Carnage er byggð á leikriti eftir franska skáldið Yasmina Reza og það er hinn réttilega umdeildi Roman Polanski sem segir kött. Lengra nær listrænn metnaður leikstjórans ekki að þessu sinni, og fyrir vikið skortir myndina sárlega þessa óskilgreindu en ómissandi bíótöfra sem kvikmynduð leikrit verða að innihalda til að vera ómaksins virði. Þetta er þó ekki alslæmt enda sannkallað stórskotalið leikara í helstu hlutverkum. Foster og Reilly eru gestgjafarnir og foreldrar tannbrotaþolans, en ósamstíga hjónin Winslet og Waltz eru á hraðferð og virðast stefna hraðbyri í uppeldislega uppgjöf. Framan af fá allir leikarar að láta ljós sitt skína og mest gustar af þeim Foster og Waltz, en um miðbik mætir kunnugleg leikhúsófreskja, sjálft farsaskrýmslið, og fær óáreitt að traðka á öllu saman. Af þessum orðum mínum má skilja að ég hafi ímugust á farsanum sem slíkum, en svo er ekki. En hann er vandmeðfarinn og í Carnage er hann fyrirsjáanlegur og þreytandi. Sem er sorglegt því hér skortir ekki hæfileikafólkið, hvorum megin myndavélar sem leitað er. Niðurstaða: Lofar góðu en missir dampinn fljótt.
Lífið Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Fleiri fréttir Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira