Fáeinir dagar eftir af vertíðinni 22. mars 2012 05:00 á miðunum Vertíðin hefur gengið vel, þrátt fyrir að brælur hafi tafið skip frá veiðum með reglulegu millibili. fréttablaðið/óskar
Loðnuvertíð er að ljúka en aðeins tuttugu þúsund tonn eru óveidd af 591 þúsund tonna aflamarki, samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Fiskistofu. Skip HB Granda áttu í gær óveidd um 1.500 tonn af kvóta fyrirtækisins og er vonast til þess að hægt verði að ná því magni í vikunni. Ingunn AK hefur lokið veiðum en hin skipin eru enn að. Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarsviðs HB Granda, hafa aðstæður til veiða verið erfiðar síðustu dagana vegna leiðinda sjólags. Loðnan er að mestu hrygnd og hefur legið á botninum og lítil færi gefið á sér. „Veiðivonin hefur verið frá því um hádegisbil og fram á kvöld en það eru ekki stórar torfur sem menn hafa verið að kasta á. Við erum að vona að úr þessu rætist þannig að kvótinn náist og það vantar ekki mikið upp á til þess að það takist," segir Vilhjálmur. Þar sem loðnan er búin að hrygna fara síðustu farmar skipanna allir í framleiðslu á fiskmjöli og lýsi. Þess má geta að þrátt fyrir að lítið sé eftir af úthlutuðum loðnukvóta hafa tíu skip verið á miðunum síðustu daga en þegar mest var stunduðu 25 skip loðnuveiðarnar, segir á heimasíðu HB Granda.- shá
Fréttir Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira