Merkja, prenta, gera og græja 13. mars 2012 11:00 Bjarki Clausen eigandi Merkiverks. Fyrirtækið er nýlega flutt á Smiðjuveg 3.mynd/stefán „
Merkiverk tekur að sér allar fyrirtækjamerkingar, bílamerkingar og skilti auk þess að prenta á boli, flestan fatnað, vinnuföt og fleira,“ segir Bjarki Clausen, eigandi Merkiverks á Smiðjuvegi 3. „Merkiverk sker einnig sandblástursfilmur í glugga og sturtugler. Þá prentar Merkiverk á ýmsa smávöru svo sem lyklakippur, bolla, penna og límbönd. Einnig ljósmyndir á striga, álplötur og foamplötur. Merkiverk prentar límbönd í Kópavogi og býður upp á prentun á pvc, solvent og polypropilynlímbönd. „Við eigum á lager límbönd sem eru merkt „brothætt“ „kælivara“ og „frystivara“ og fleira í þeim dúr og eins erum við með sérmerkt límbönd fyrir fólk sem er að flytja sem eru þá merkt „eldhús“, „stofa”, „bækur,“ brothætt“ og fleira. Við getum prentað í allt að þrem litum,“ útskýrir Bjarki og bendir á síðuna www.limbond.is Hann segir verð á sérframleiddum, áprentuðum límbandsrúllum geti jafnvel verið lægra en verð á ómerktum límbandsrúllum keyptum í byggingavöruverslun eða stórmörkuðum. „Afgreiðslufresturinn á límböndunum er einnig stuttur, þar sem límböndin eru prentuð hjá okkur en ekki erlendis. Lágmarksmagn í prentun er aðeins 36 rúllur og því auðvelt fyrir lítil fyrirtæki eða einstaklinga að láta sérframleiða fyrir sig límbönd. Merkiverk flytur einnig inn vandaða penna frá ítalska fyrirtækinu Stilolinea og bendir Bjarki á heimsíðuna www.stilolinea.it Hjá Merkiverk starfar hönnuður en einnig geta viðskiptavinir skilað inn efni tilbúnu fyrir prent. Nánari upplýsingar er að finna á www.merkiverk.is og einnig á facebook síðu Merkiverks.
Mest lesið Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira