Blint í fjúkinu þegar vind hreyfði 28. janúar 2012 07:00 Lokað Snúa þurfti við bílum á leið út úr bænum í gær vegna lokunar Hellisheiðar.Fréttablaðið/GVA
Veginum um Hellisheiði var í gær lokað vegna ófærðar í þriðja sinn í þessum mánuði. Lokunin tók gildi í gærmorgun, en heiðin hafði þá verið opnuð um nóttina eftir að hafa verið lokuð í nær sólarhring. Þar áður var henni lokað 10. janúar. Nokkuð öngþveiti myndaðist upp við Litlu-kaffistofuna vegna þeirra sem ekki treystu sér áfram og vegna bíla sem voru fastir á heiðinni fyrri partinn í gær. Vegurinn hafði þá ekki verið opinn nema í nokkrar klukkustundir. Mikill snjór var á fjallinu og léttur þannig að færð var fljót að spillast auk þess sem mjög blint var í snjófjúkinu þegar tók að hreyfa vind. Fyrri part dags voru bæði Hellisheiði og Þrengsli lokuð, en Þrengslin voru opnuð aftur um miðjan dag í gær. Mög slæmt veður hafði þá verið á svæðinu og ekki gert ráð fyrir að það tæki að lagast fyrr en undir kvöld í gær þegar hlýnaði og draga átti úr úrkomu. Vegagerðin varaði þó sérstaklega við því að um leið og blotnaði yrðu vegir víða flughálir. „Flestar aðrar leiðir á Suðurlandi eru færar en þæfingsfærð er þó á Mosfellsheiði og skafrenningur og sums staðar er þungfært á fáfarnari sveitavegum," sagði á vef Vegagerðarinnar. - óká
Fréttir Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira