Uppselt á tónleika Leoncie 26. janúar 2012 15:00 „
Ég bjóst alveg við því að það yrðu góðar móttökur því Leoncie á stóran aðdáendahóp hér á landi," segir Franz Gunnarsson tónleikahaldari en uppselt er á tónleika Leoncie næstkomandi laugardagskvöld. Tónleikarnir eru haldnir á Gauknum og segir Franz að strax hafi byrjað að seljast vel á tónleikana. „Fyrstu móttökurnar voru þannig að við gerðum okkur grein fyrir að það yrði fullur kofi," segir Franz og staðfestir að Leoncie sjálf sé ánægð með móttökurnar og ætlar að tjalda öllu til. „Þetta verða miklu lengri tónleikar en yfirleitt hjá Leoncie en hún ætlar meðal annars að frumsýna nýtt myndband. Þetta verður alvöru og býst ég við að hún skipti nokkrum sinnum um búninga yfir kvöldið," segir Franz og lofar að tónleikagestir verði ekki fyrir vonbrigðum. Leoncie heldur bara þessa einu tónleika að þessu sinni þó að vissulega hafi viðtökurnar boðið upp á fleiri. Einnig hefur fyrirspurnum rignt yfir Franz um hvort Leoncie geti komið fram í ýmsum einkasamkvæmum á meðan hún er stödd á landinu en hún hefur ekki tíma fyrir það að þessu sinni. „Hún vill einbeita sér að þessum tónleikum og gera þá vel. Það er aldrei að vita hvort hún komi kannski bara aftur síðar," segir Franz en þeir sem ekki tryggðu sér miða á tónleika Leoncie geta hlustað á hana í Popplandi á föstudaginn þar sem hún tekur nokkur lög. -áp
Tónlist Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Meryl Streep verður Joni Mitchell Bíó og sjónvarp Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið X-ið bætir við sig Bolla Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira