Formúla 1

Maldonado refsað og færður aftur um tíu sæti

Birgir Þór Harðarson skrifar
Maldonado er síbrotamaður í Formúlu 1.
Maldonado er síbrotamaður í Formúlu 1. nordicphotos/afp
Pastor Maldonado, ökumanni Williams-liðsins í Formúlu 1, hefur verið refsað fyrir að hundsa kall dómara um að koma bílnum í vigtun í miðjum tímatökum. Maldonado færist aftur um tíu sæti á ráslínunni og hefur því síðasta kappakstur ársins sextándi.

Dómarar geta skipað ökumönnum að mæta með bíla sína í vigtun hvenær sem er í tímatökum. Það er gert með því að kveikja á rauðu ljósi við bílskúrinn þar sem vigtin er. Maldonado var á leiðinni inn í sinn eigin bílskúr þegar hann ók gegn þessu rauða ljósi.

Refsingin hefur áhrif á titilbaráttu Fernando Alonso og Sebastian Vettel því Maldonado átti sjötta besta tímann eftir tímatökurnar en Alonso aðeins þann áttunda. Refsingin færir Alonso fram í sjöunda sætið á ráslínu, nær keppinauti sínum Vettel sem ræsir fjórði.

Þetta er ekki í fyrsta sinn í ár sem Maldonado er áminntur eða honum refsað. Í Kína var hann áminntur fyrir að vera fyrir Heikki Kovalainen í tímatökum og í Bretlandi lenti hann í samstuði við Sergio Perez.

Maldonado var færður aftar á ráslínu í Mónakó, enn eftir viðskipti við Perez, í Belgíu þar sem hann var fyrir Nico Hulkenberg í tímatökum og keyrði á Timo Glock, og í Ítalíu þar sem hann þjófstartaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×