Saga um vandræðagang Þóroddur Bjarnason skrifar 16. nóvember 2012 12:18
ð ævisaga Stefán Pálsson, Anton Kaldal Ágústsson, Gunnar Vilhjálmsson og Steinar Ingi Farestveit Crymogea ð ævisaga er eins og nafnið ber með sér saga bókstafsins ð, sem eins og segir í bókinni snýst að miklu leyti um "mistök og vandræðagang í samskiptum við fólk sem ekki notast við þennan óvenjulega bókstaf og hefur jafnvel ekki hugmynd um tilvist hans". Á kápu er efni bókarinnar lýst eins og um Hollywood-spennusögu sé að ræða og rætt er um viðburðaríkt líf ð-sins, fæðingu þess, dauða og upprisu. Því öllu saman eru gerð skil í bókinni, í sögu sem berst heimshorna á milli, á árþúsunda tímabili. Höfundar eru fjórir. Þrír þeirra eru grafískir hönnuðir en sá fjórði er sagnfræðingur, Stefán Pálsson. Í bókinni kemur fram að hönnuðirnir þrír hafa allir rannsakað hver um sig ákveðin tímabil í þróunarsögu bókstafsins með tilliti til nútíma leturhönnunar, og þær rannsóknir liggja til grundvallar efni bókarinnar. Bókin er ríkulega myndskreytt og hönnunin er fyrsta flokks. Kápa, pappír, brot og letur er allt vandlega valið, og bókin því mjög eigulegur gripur. Þó bókin sé saga ð-sins, þá er hún líka saga ýmissa annarra hluta. Hún er saga prentlistarinnar á Íslandi, hún er saga leturs og stafrófa. Hún er líka saga einstakra annarra stafa eins og þ-sins, zetunnar og ý-sins. Þetta er einnig saga staðla, og nútíma stafasetta. Vegir allra þessara sagna liggja að lokum til ð-sins, aðalhetju sögunnar, en á köflum dettur þráðurinn niður þegar aðdragandinn verður of langur og fær á sig yfirbragð kennslubókartexta, þó lipur sé. Skemmtilegar dæmisögur lífga textann við, t.d. sögurnar af tungumálinu elfdölsku, tónlistarmanninum Prince og fótboltamanninum Gylfa Sigurðssyni. Ótal skemmtilegir fróðleiksmolar eru í bókinni, eins og til dæmis sögur, eða tilgátur, um þátt Rasmusar Kristjáns Rask í endurvakningu ð-sins inn í íslenskt mál í byrjun 19. aldarinnar, og sagan af því þegar Jón Baldvin Hannibalsson átti í deilum við Tyrki í aðdraganda EES-samningsins, til að halda íslensku stöfunum í alþjóðlegum stafatöflum. Ekki má heldur gleyma hönnunarfræðilegum þætti bókarinnar, en fyrir áhugamenn er gaman að lesa um sveigjur, beygjur, gegnumstrik og stungur í stafnum sjálfum, og annað er snýr að því útlitslega.Niðurstaða: Falleg og fróðleg bók og skemmtileg á köflum, en herslumuninn vantar til að hugmyndin gangi fullkomlega upp.
Gagnrýni Mest lesið Aldrei sagt söguna af Social Pete opinberlega Lífið Ákvörðun um að sýna Eurovision tekin fyrir barnafjölskyldur Lífið Nennti ekki að meika það Tónlist „Við flytjum aldrei héðan“ Lífið Kosningavökur flokkanna: Hótel, veislusalir og einn leynistaður Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eiga von á öðru barni Lífið Flosi Eiríks selur 300 milljón króna einbýlishús Lífið Þau komust áfram í úrslit Eurovision Lífið Oddvitaáskorunin: Iðulega kallaður Lúlli laukur Lífið Stjörnufans hjá Birni á Edition Tónlist Fleiri fréttir Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Klámhundarnir engu gleymt Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Hvað er það versta sem þú hefur gert? Allir komust lifandi út – nema Beethoven Hugljúft geimævintýri líður fyrir þreytandi þúsaldarhúmor Sjá meira