Gjafakort gleðja alla 31. október 2012 11:05 Með gjafakorti geta starfsmenn keypt það sem hugurinn girnist.
Gjafakort Smáralindar hafa notið mikilla vinsælda, bæði hjá fyrirtækjum og einstaklingum, undanfarin ár enda kjörin leið til þess að tryggja að allir fái eitthvað fallegt og nytsamt. "Fólk hefur þá val og frelsi til að kaupa það sem það langar í eða vantar. Í Smáralind eru 80 rekstraraðilar; ýmsar verslanir, veitingastaðir, skemmtigarður og bíó þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi," segir Guðrún Margrét Örnólfsdóttir. Gjafakort Smáralindar er rafrænt kort, eins og debetkort, með fyrirframgreiddri upphæð. Starfsmaður fær svo kortið að gjöf og getur notað innistæðuna að eigin vild í verslunum Smáralindar. Hægt er að fylgjast með innistæðu kortsins á heimasíðu Smáralindar, með því að stimpla inn númer þess eða með því að hringja á þjónustuborð Smáralindar. "Við höfum margoft heyrt sögur af því að gjafakortið hafi létt undir með fólki fyrir jólin og jólaundirbúninginn. Margir kaupa sér það sem þá langar í en aðrir kaupa gjafir fyrir ættingja eða jafnvel jólamatinn. Sveigjanleiki gjafakortsins er því mjög mikill." Hægt er að merkja kortin með vörumerkjum fyrirtækja sem gerir gjöfina frá fyrirtækinu persónulegri. "Þessa þjónustu veitum við að kostnaðarlausu. En gott er að hafa nokkurra daga fyrirvara fyrir sérmerkingar, sérstaklega ef um mikið magn er að ræða." Gjafakortin koma nú í nýjum búningi þar sem búið er að endurhanna útlit þeirra. "Við vildum gera þau persónulegri og fallegri og létum því endurhanna þau. Kortin koma öll í fallegu umslagi en fyrir 100 krónur er hægt að kaupa fallega gjafaöskju sem er þá meira eins og pakki." Gjafkort Smáralindar er hægt að nálgast á þjónustuborði Smáralindar á annarri hæð, eða með því að hafa samband í síma 5288000 eða með tölvupósti á thjonusta@smaralind.is.
Mest lesið Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Hæstu stýrivextir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Viðskipti innlent Breyta nafni Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Allt að 1500 króna munur á jólabókunum milli verslana Neytendur Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Yfir milljón dagskrárliðir sóttir vikulega Greiðsluáskorun Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Sjá meira