Formúla 1

Button og Webber fljótastir á æfingum fyrir kappaksturinn í Japan

Birgir Þór Harðarson skrifar
Button var fljótastur um Suzuka-brautina á fyrri æfingunni í dag. Webber náði besta tíma á þeirri seinni.
Button var fljótastur um Suzuka-brautina á fyrri æfingunni í dag. Webber náði besta tíma á þeirri seinni. nordicphotos/afp
Jenson Button og Mark Webber deildu með sér fyrsta sætinu í æfingunum tveimur fyrir japanska kappaksturinn um helgina. Lewis Hamilton er sannfærður um að Red Bull-liðið verði þeirra helsti keppinautur.

"Red Bull-bílarnir líta út fyrir að vera mjög fljótir," sagði Hamilton að loknum æfingum í dag. Lewis varð annar á báðum æfingum. "Ég gæti örugglega bætt tíma Webbers. En ef Vettel verður svipað fljótur í tímatökunum á morgun geri ég ráð fyrir að þetta verði mjög jafnt. Löngu akstursloturnar þeirra voru líka mjög góðar."

Jenson Button vann japanska kappaksturinn í fyrra með nokkrum yfirburðum. Hann er talinn sigurstranglegur í ár enda er McLaren-bíllinn í frábæru standi. Suzuka-brautin hentar ökustíl Buttons jafnframt nokkuð vel.

Fernando Alonso, ökuþór Ferrari og efsti maður í stigakeppni ökuþóra, varð að gera sér ellefta og fimmta sætið að góðu á æfingunum. Hann mun berjast við að halda í við McLaren og Red Bull í kappakstrinum enda hefur Ferrari ekki náð að halda í við bresku liðin í tæknistríðinu.

Mercedes-ökuþórarnir komu sér vel fyrir í efstu ellefu sætunum á æfingunum. Þeir munu að öllum líkindum berjast við Force India og Sauber um síðustu stigasætin eins og í Singapúr.

Lotus-ökuþórarnir Kimi Raikkönen og Romain Grosjean voru í basli á æfingunum. Þeir voru í ruglinu á fyrri æfingunni en náðu að púsla hlutunum saman fyrir þá seinni. Kimi varð þó aðeins fjórtándi á seinni æfingunni en Grosjean sjötti.

Úrslit fyrstu æfinganna


ÖkumaðurBíll / VélBesti tímiBilHringirmeðal km/h
1Jenson ButtonMcLaren/Mercedes1'34.507

20221.202
2Lewis HamiltonMcLaren/Mercedes1'34.7400.23326220.658
3Mark WebberRed Bull/Renault1'34.8560.34924220.388
4Nico RosbergMercedes1'35.0590.55218219.918
5M.SchumacherMercedes1'35.1220.61520219.772
6Kamui KobayashiSauber/Ferrari1'35.1990.69227219.594
7Felipe MassaFerrari1'35.2830.77624219.401
8Paul Di RestaForce India/Mercedes1'35.2990.79218219.364
9Nico HülkenbergForce India/Mercedes1'35.4740.96722218.962
10Pastor MaldonadoWilliams/Renault1'35.4780.97124218.953
11Fernando AlonsoFerrari1'35.4840.97726218.939
12Sergio PérezSauber/Ferrari1'35.5841.07724218.71
13Kimi RäikkönenLotus/Renault1'35.6911.18422218.465
14Romain GrosjeanLotus/Renault1'35.7241.21721218.39
15Daniel RicciardoToro Rosso/Ferrari1'36.1231.61619217.483
16Jean-Eric VergneToro Rosso/Ferrari1'36.2221.71525217.26
17Sebastian VettelRed Bull/Renault1'36.3661.85923216.935
18Valtteri BottasWilliams/Renault1'36.3891.88224216.883
19Timo GlockMarussia/Cosworth1'37.7163.20917213.938
20Vitaly PetrovCaterham/Renault1'38.2953.78823212.678
21Charles PicMarussia/Cosworth1'38.6164.10925211.985
22N.KarthikeyanHRT/Cosworth1'39.0434.53625211.071
23G.van der GardeCaterham/Renault1'39.3744.86722210.368
24Pedro de la RosaHRT/Cosworth1'39.6885.18119209.706
Úrslit seinni æfinganna


ÖkumaðurBíll / VélBesti tímiBilHringirmeðal km/h
1Mark WebberRed Bull/Renault1'32.493

34226.019
2Lewis HamiltonMcLaren/Mercedes1'32.7070.21432225.497
3Sebastian VettelRed Bull/Renault1'32.8360.34337225.184
4Nico HülkenbergForce India/Mercedes1'32.9870.49430224.818
5Fernando AlonsoFerrari1'33.0930.628224.562
6Romain GrosjeanLotus/Renault1'33.1070.61435224.528
7Jenson ButtonMcLaren/Mercedes1'33.3490.85622223.946
8Bruno SennaWilliams/Renault1'33.4991.00635223.587
9Felipe MassaFerrari1'33.6141.12132223.312
10M.SchumacherMercedes1'33.7501.25713222.988
11Nico RosbergMercedes1'33.8661.37319222.713
12Sergio PérezSauber/Ferrari1'33.9031.4136222.625
13Kamui KobayashiSauber/Ferrari1'33.9831.4933222.435
14Kimi RäikkönenLotus/Renault1'34.2911.79812221.709
15Pastor MaldonadoWilliams/Renault1'34.3001.80733221.688
16Daniel RicciardoToro Rosso/Ferrari1'34.8632.3732220.372
17Jean-Eric VergneToro Rosso/Ferrari1'35.0802.58734219.869
18H.KovalainenCaterham/Renault1'35.7113.21841218.42
19Vitaly PetrovCaterham/Renault1'35.8703.37737218.057
20Timo GlockMarussia/Cosworth1'36.1943.70132217.323
21Charles PicMarussia/Cosworth1'36.6364.14328216.329
22Pedro de la RosaHRT/Cosworth1'37.3424.84930214.76
23N.KarthikeyanHRT/Cosworth1'37.7015.20835213.971
24Paul Di RestaForce India/Mercedes



2




Fleiri fréttir

Sjá meira


×