Aron skoraði tvö og lagði upp eitt Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. september 2012 18:54 Aron í leik með íslenska U-21 landsliðinu.
Aron Jóhannsson hefur nú skorað átta mörk í síðustu þremur leikjum sínum með danska liðinu AGF. Liðið vann 3-2 sigur á Midtjylland í dag og átti Aron stórleik. Aron kom sínum mönnum yfir á elleftu mínútu en Midtjylland náði að jafna metin um stundarfjórðungi síðar. Aron skoraði aftur nítján mínútum fyrir leikslok og lagði svo upp þriðja mark AGF rétt fyrir leikslok. Midtjylland minnkaði muninn með marki í uppbótartíma. Hann skoraði öll fjögur mörk AGF í 4-1 sigri á Horsens þann 27. ágúst síðastliðinn og skoraði svo tvívegis í 4-0 sigri á Silkeborg fyrir tveimur vikum síðan. Aron hefur greinilega haldið sér á tánum í landsleikjafríinu því hann hélt uppteknum hætti í dag og er nú alls kominn með níu mörk í níu leikjum á tímabilinu í dönsku úrvalsdeildinni. Hann er markahæsti leikmaður deildarinnar. AGF vann aðeins einn sigur í fyrstu sex leikjum sínum á tímabilinu en eftir að Aron byrjaði að raða inn mörkunum hefur liðið unnið nú þrjá leiki í röð. Liðið hoppaði úr sjöunda sæti í það fjórða með sigrinum í dag og er nú með fjórtán stig eftir níu leiki.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Íslenski boltinn Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Henderson í stuði í stórsigri Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah Magnað mark dugði fyrir sigri „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Tap í heimalandinu reyndist síðasti naglinn í kistuna Sjá meira