Formúla 1

Button vann sannfærandi sigur í Belgíu

Birgir Þór Harðarson skrifar
Button slapp við áreksturinn í fyrstu beygju en liðsfélagi hans var ekki svo heppinn.
Button slapp við áreksturinn í fyrstu beygju en liðsfélagi hans var ekki svo heppinn. nordicphotos/afp
Jenson Button átti ekki í neinum vandræðum með að vinna belgíska kappaksturinn í dag. McLaren-bíll Buttons var lang bestur í kappakstrinum og ógnaði honum enginn alla keppnina.

"Keppnin var gallalaus," sagði Martin Whitmarsh, liðstjóri McLaren, eftir keppnina. "Þessi kappakstur minnir okkur aðeins á hversu frábær ökumaður Button er."

Kappaksturinn litaðist mikið af árekstrinum, sem varð í fyrstu beygju strax eftir ræsingu, því þar féllu úr leik Ferrari-ökumaðurinn Fernando Alonso, Lewis Hamilton á McLaren, Romain Grosjean á Lotus og Sergio Perez á Sauber. Kamui Kobayashi fékk líka að kenna á því í árekstrinum en náði þó að klára keppnina með herkjum.

Sebastian Vettel ók frábærlega í dag og skilaði Red Bull-bílnum heim í annað sæti með því að stoppa aðeins einu sinni og skipta um dekk, eins og Button. Vettel átti nokkra frábæra framúrakstra sem skópu árangur hans á brautinni í dag.

Kimi Raikkönen á Lotus lauk mótinu í þriðja sæti. Það verða að teljast vonbrigði fyrir Kimi sem taldi sig geta sigrað mótið og styrkja stöðu sína í titilbaráttunni.

Nico Hulkenberg náði frábæru fjórða sæti fyrir Force India-liðið. Hulkenberg ætti í raun að fá verðlaun fyrir besta akstur dagsins. Felipe Massa á Ferrari varð fimmti og Michael Schumacher sjöundi. Schumacher var kominn í annað sætið og það leit út fyrir að gamli meistarinn myndi koma sér á verðlaunapall. Allt kom fyrir ekki því enn bilaði bíllinn.

Úrslit dagsins hafa gert titilbaráttuna enn áhugaverðari því nú er Vettel aðeins 24 stigum á eftir Alonso. Næst verður keppt á Monza á Ítalíu um næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×