Ólsarar í góðum málum eftir sigur á Hetti | Djúpmenn lögðu Stólana Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. ágúst 2012 19:51 Ólsarar eru í góðum málum á toppi 1. deildar.
Guðmundur Steinn Hafsteinsson skoraði tvö marka Víkings Ólafsvíkur í 3-0 útisigri á Hetti í 1. deild karla í kvöld. Ólsarar hafa fimm stiga forskot á toppi deildarinnar eftir sigurinn. Guðmundur Steinn skoraði fyrsta markið á 29. mínútu og gestirnir leiddu í hálfleik. Hattarmönnum hefur gengið afar vel að verjast marki sínu á heimavelli í sumar en máttu þó horfa á eftir knettinum í net sitt tvisvar til viðbótar. Eldar Masic skoraði annað markið á 57. mínútu áður en Guðmundur Hafsteinn innsiglaði sigurinn stundarfjórðungi fyrir leikslok. Víkingur Ólafsvík hefur 28 stig í efsta sæti deildarinnar eftir sigurinn. Haukar hafa 23 stig en liðið sækir Þór heim annað kvöld. Fjölnir er í 3. sæti með 22 stig en liðið hefur 2-0 yfir gegn ÍR í leikhléi og útlitið gott hjá Grafarvogspiltum. Höttur er áfram á botni deildarinnar með tólf stig. BÍ/Bolungarvík vann dýrmætan 1-0 sigur á Tindastóli á Sauðárkróki. Gunnar Már Elíasson skoraði eina markið eftir hálftímaleik. Djúpmenn lyftu sér úr fallsæti með sigrinum. Liðið hefur nú sextán stig um miðja deild en aðeins munar sjö stigum á liðinu í 4. sæti og því neðsta. Stöðuna í deildinni má sjá hér. Upplýsingar um úrslit og markaskorara frá Úrslit.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Golf Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings