Golf

Guðrún Brá og Ragnar Már Íslandsmeistarar unglinga í höggleik

Guðrún Brá og Ragnar Már með verðlaun sín.
Guðrún Brá og Ragnar Már með verðlaun sín. Mynd/GSÍmyndir.net
Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK, Ragnhildur Kristinsdóttir GR, Saga Traustadóttir GR og Ragnar Már Garðarsson GKG urðu í dag Íslandsmeistarar í flokkum sínum á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fór á Kiðjabergsvelli um helgina.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK varði Íslandsmeistaratitilinn frá því í fyrra í flokki 17-18 ára stúlkna. Guðrún Brá lék hringina þrjá á 229 höggum og vann með þriggja högga mun.

Guðrún Brá setti glæsilegt vallarmet af bláum teigum á fyrsta keppnisdegi. Eldra metið bætti hún um tvö högg en hún lék á 69 höggum. Í öðru sæti varð Anna Sólveig Snorradóttir GK en Anna lék á 232 höggum. Í þriðja sæti varð Guðrún Pétursdóttir GR á 233 höggum.

Ragnhildur Kristinsdóttir GR varð Íslandsmeistari í flokki telpna 15-16 ára. Ragnhildur lék á 234 höggum eða 21 yfir pari. Í öðru sæti varð Sara Margrét Hinriksdóttir GK á 242 höggum eða 29 yfir pari. Í þriðja sæti varð Gunnhildur Kristjánsdóttir GKG á 249 höggum eða 36 yfir pari.

Saga Traustadóttir GR varð Íslandsmeistari í stelpnaflokki 14 ára og yngri, hún lék á 250 höggum eða 47 yfir pari. Önnur varð Gerður Hrönn Ragnarsdóttir GR á 261 höggi eða 48 yfir pari. Í þriðja sæti varð Eva Karen Björnsdóttir GR á 262 höggum eða 49 yfir pari.

Ragnar Már Garðarsson varð Íslandsmeistari í flokki pilta 17-18 ára. Ragnar lék á 224 höggum eða 11 yfir pari. Eann fékk fugla á þremur síðustu holunum og vann með eins högga mun. Í öðru sæti varð Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Bjarki Pétursson GB, á 225 höggum eða 12 yfir pari. Í þriðja sæti varð Emil Þór Ragnarsson GKG á 232 höggum eða 19 höggum yfir pari.

Leik er ólokið í flokki drengja 14 ára og yngri annars vegar og flokki 15-16 ára drengja hins vegar. Óhætt er að segja að veðrið hafi sett svip sinn á mótið en keppendur fengu allar gerði af veðri allt frá sól og sumaryl yfir í krappa haustlægð með roki og rigningu.

Stúlkur 17-18 ára.

1 Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK, 69/ 76/ 84 = 229 +16

2 Anna Sólveig Snorradóttir GK, 73/ 75/ 84 = 232 +19

3 Guðrún Pétursdóttir GR, 73/ 76/ 84 = 233 +20

Telpur 15-16 ára.

1 Ragnhildur Kristinsdóttir GR, 77/ 78/ 79 = 234 +21

2 Sara Margrét Hinriksdóttir GK, 81/ 80/ 81 = 242 +29

3 Gunnhildur Kristjánsdóttir GKG, 88/ 78/ 83 = 249 +36

Stelpur 14 ára og yngri

1 Saga Traustadóttir GR, 85/ 78 / 87 = 250 +37

2 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir GR, 86 / 87/ 88 = 261 +48

3 Eva Karen Björnsdóttir GR, 84/ 85/ 93 =262 +49

Piltar 17-18 ára

1 Ragnar Már Garðarsson GKG, 74/ 71/ 79 = 224 +11

2 Bjarki Pétursson GB, 78/ 71/ 76 = 225 +12

3 Emil Þór Ragnarsson GKG, 75/ 78/ 79 = 232 +19


Tengdar fréttir

Guðrún Brá og Ragnar Már leiða fyrir lokadaginn á Íslandsmóti unglinga

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK og Ragnar Már Garðarsson úr GKG hafa forystu fyrir lokahringinn á Íslandsmóti unglinga í höggleik en leikið er á Kiðjabergsvelli. Keppendur voru ræstir út snemma í morgun vegna slæmrar veðurspár og náðu flestir keppendur að ljúka leik við sómasamleg veðurskilyrði.

Guðrún Brá bætti vallarmetið á Kiðjabergsvelli

Í dag var leikin fyrsti hringurinn af þremur á Íslandsmóti unglinga en leikið er á Kiðjabergsvelli við frábærar aðstæður. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK lék fyrsta hringinn á 69 höggum, eða 2 höggum undir pari vallar. Hallgrímur Júlíusson úr GV er efstur í 17-18 ára flokki pilta en hann lék á einu höggi yfir pari eða 72 höggum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×