Birgir Leifur: Alls ekki sáttur við hringinn 26. júlí 2012 18:27 Birgir Leifur Hafþórsson slær hér á fjórðu holu þar sem hann gerði slæm mistök. seth
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG var alls ekki sáttur við fyrsta hringinn hjá sér á Íslandsmótinu í höggleik sem hófst í dag á Strandarvelli við Hellu. Birgir, sem er fjórfaldur Íslandsmeistari, lék á einu höggi undir pari vallar eða 69 höggum. Hann er sem eins og staðan er þessa stundina í 8. sæti, þremur höggum á eftir efsta manni. Birgir fékk fjóra fugla á hringnum, einn skolla og einn skramba. „Ég gerði mistök á fjórðu holu og tók rangar ákvarðanir þar. Teighöggið var alltof stutt, og síðan gerði ég röð mistaka. Vonandi var þetta slæmi hringurinn á mótinu, eigum við ekki bara að segja það. Ég var fyirir utan þetta í ágætum málum," sagði Birgir en hann hefur sett sér það markmið að bæta met þeirra Björgvins Þorsteinssonar og Úlfars Jónssonar sem hafa sigrað sex sinnum á Íslandsmótinu í höggleik.
Golf Mest lesið Hljóp maraþonhlaup á hverjum degi í heilt ár Sport Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Handbolti HM úr sögunni hjá Arnari Frey Handbolti „Ég var að sinna hlutum sem eru mikilvægari en körfubolti“ Körfubolti Sveinn kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Arnars Freys Handbolti „Hann er að hringja til að segjast ætla að drepa mig“ Körfubolti Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Enski boltinn Stórundarleg hegðun O'Sullivans Sport „Það mikilvægasta sem við eigum“ Handbolti Járnkona sundsins kveður Sport Fleiri fréttir Gunnlaugur vann en Evrópa tapaði Allt jafnt fyrir lokadaginn Sögufrægur golfvöllur í hættu vegna eldanna í Los Angeles Kylfurnar eftir í Amsterdam en Gunnlaugur nýtur sín meðal þeirra bestu Sjóðheitur Gunnlaugur tryggði Evrópu einn sigur Slógu golfbolta hvors annars og misstu af milljónum Gunnlaugur í úrvalslið Evrópu og bestur ásamt Huldu Meiddist við að elda jólasteikina og missir af fyrstu mótum ársins Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Tiger og sonur í forystu á feðgamótinu Verða að hafa fæðst sem konur til að fá að keppa á LPGA Vill verðlaunafé á Ryder Cup til að styrkja góð málefni Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Sjá meira