Formúla 1

Ecclestone íhugar að fjármagna kappakstur í Lundúnum

Birgir Þór Harðarson skrifar
Lengi hafa Formúlu 1 áhugamenn og auðmenn haft áhuga á því að halda Formúlu 1 kappasktur í Lundúnum, höfuðborg Bretlands.

Ekki eru mörg á síðan teiknuð var upp braut um Hyde Park þar í borg. Þau áform féllu en nú hefur Bernie Ecclestone sagst tilbúinn að fjármagna kappakstur um stræti Lundúna ef vilji er fyrir hendi.

Aðeins vika er liðin síðan hugmyndir um að Ólympíuleikvangnum verði breytt í kappakstursbraut komust á yfirborðið. Bernie kappakostar nú við að halda þeim hugmyndum á lofti.

Spánski bankinn Santander hélt í gær athöfn til að kynna sig og breska kappaksturinn eftir viku. Santander er titilstyrktaraðili kappakstursins þar í landi. Þar var lagt til hvernig brautin mundi liggja. Gert er ráð fyrir að yfir 120.000 áhorfendur gætu fylgst með kappakstrinum á götum Lundúna.

Brautin mundi þá liggja um Trafalgar-torg, framhjá Buckingham-höll og Westminster.

"Hugsaðu þér hvað þetta myndi gera fyrir túrismann," sagði Ecclestone. "Þetta yrði stórkoslegt, gott fyrir Lundúnir, gott fyrir England. Alla vega miklu betra en Ólympíuleikarnir."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×