Formúla 1

Button og Alonso fljótastir á æfingum

Birgir Þór Harðarson skrifar
Alonso og Button voru fljótastir á æfingum í dag á Spáni.
Alonso og Button voru fljótastir á æfingum í dag á Spáni. nordicphotos/afp
Þeir Fernando Alonso á Ferrari og Jenson Button á McLaren voru fljótastir á æfingum dagsins. Keppt er í Barcelona á Spáni um helgina.

Gríðarlegar vegalengdir voru eknar á æfingum dagsins, þá sérstaklega á seinni æfingunni þegar hringjafjöldi ökumanna fór að slá í keppnisvegalengdir.

Efstu menn fylgja enn sama stefi og í fyrstu fjórum mótum ársins: Lítið er á milli efstu tíu manna eða innan við sekúnta skilur fyrsta sætið frá því tíunda.

Enginn ók á mjúku dekkjagerðinni á fyrri æfingunum í morgun. Það bendir til þess að liðin ætli að eiga þau óslitin inni fyrir tímatökur morgundagsins og keppni sunnudagsins.

Brautarhitinn fór hækkandi eftir því sem leið á daginn, sem verður að teljast áhyggjuefni fyrir Mercedes-menn því þeir hafa verið í vandræðum með bílinn því hann á það til að ofhita dekkin.

Í dag var þó heiðskýrt en búist er við að skýjahula hylji brautina á morgun og sveipi hana þoku á sunnudag.


Tengdar fréttir

Raikkönen sigurviss fyrir kappaksturinn í Barcelona

Lotus-ökuþórinn Kimi Raikkönen segist eiga möguleika á því að sigra spánska kappaksturinn um næstu helgi. Kimi varð annar á eftir heimsmeistaranum Sebastian Vettel í Barein fyrir tveimur vikum.

McLaren-bíllinn fær andlitsliftingu fyrir Spán

Liðstjóri McLaren-liðsins, Martin Whitmarsh, segir liðið hafa endurhannað framenda bílsins og ætla að notast við hærra nef í kappakstrinum á Spáni um komandi helgi.

Evróputímabilið hefst á Spáni um helgina

Á sunnudag fer spænski kappaksturinn fram í Barcelona og markar upphaf tímabilsins í Evrópu. Í gegnum tíðin hefur fyrsti Evrópukappaksturinn verið vettvangur liðanna til að kynna nýjar uppfærslur á bílum sínum og virðist ekki vera nein breyting á því í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×