Juventus meistari á Ítalíu | Inter vann borgarslaginn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. maí 2012 23:44 Stuðningsmenn Juventus fögnuðu vel og innilega í leikslok. Nordic Photos / Getty Images
Juventus tryggði sér í kvöld meistaratitilinn á Ítalíu með 2-0 sigri á Cagliari. Á sama tíma hafði Inter betur gegn AC Milan í grannaslag liðanna. Þökk sé tapi AC Milan dugði Juventus sigur í sínum leik til að tryggja sér titilinn. Fögnuður leikmanna var því mikill í leikslok. Juventus hefur enn ekki tapað leik á tímabilinu en liði mætir Atalanta í lokaumferð tímabilsins um næstu helgi. Liðið hefur unnið 22 leiki til þessa og gert fimmtán jafntefli. Þetta er í fyrsta sinn sem Juventus verður meistari síðan að titilinn var tekinn af liðinu vegna veðmálahneykslisins sem skók ítalska knattspyrnu árið 2006. AC Milan er í öðru sæti deildarinnar en tvö efstu liðin voru fyrir löngu búin að stinga önnur af. Zlatan Ibrahimovic skoraði bæði mörk liðsins í 4-2 tapi fyrir Inter. Diego Milito skoraði þrennu fyrir Inter og Maicon það fjórða. Udinese er í þriðja sæti með 61 stig eftir 2-0 sigur á Genoa og stendur því vel að vígi í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Lazio kemur næst með 59 stig og Napoli og Inter eru með 58 stig.Úrslit dagsins: Siena - Parma 0-2 Atalanta - Lazio 0-2 Udinese - Genoa 2-0 Bologna - Napoli 2-0 Palermo - Chievo 4-4 Novara - Cesena 3-0 Inter - AC Milan 4-2 Cagliari - Juventus 0-2
Ítalski boltinn Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Bruno settur á bekkinn Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Íslenski boltinn Fleiri fréttir Real Sociedad - Levante | Heldur Orri áfram að skora? Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Sjá meira