Formúla 1

Samband Hamilton og Button gæti snúist upp í andhverfu sína

Birgir Þór Harðarson skrifar
Lewis Hamilton og Jenson Button, ökumenn McLaren liðsins, þurfa að hafa varan á segir Johnny Herbert dómari í Formúlu 1 og fyrrum ökumaður. Hann telur gott samband liðsfélaganna geta snúist upp í andhverfu sína í ár haldi McLaren áfram að hafa yfirburði.

Herbert telur liðsfélagana geta orðið að erkifjendum á brautinni mjög auðveldlega á tímabilinu. Þeir þurfi að passa að keppnisskapið smiti ekki útfyrir bílstjórasætið og eyðileggi þeirra góða persónulega samband.

Við vefsíðu breska götublaðsins The Sun segir Herbert að það skipti ökumennina miklu máli hver hafi yfirhöndina því sá fær meiri athygli frá liðinu. "Ég held að helsta barátta Lewis verði við Jenson," sagði Herbert.

Lewis og Jenson hefur verið líkt saman við ekki minni menn en Ayrton Senna og Alain Prost sem óku fyrir McLaren árin 1988 og 1989. Liðið hafði gríðarlega yfirburði þá en bardaga Senna og Prost lauk með flugeldasýningu í japanska kappakstrinum 1989. Alain Prost varð heimsmeistari það árið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×