Formúla 1

Red Bull flýgur uppfærðum bíl til Barcelona

Birgir Þór Harðarson skrifar
Heimsmeistarinn vonast til að geta hafið titilvörn sína með sigri í Ástralíu. Til þess þarf hann keppnishæfan fák sem Red Bull mun áreiðanlega skaffa honum.
Heimsmeistarinn vonast til að geta hafið titilvörn sína með sigri í Ástralíu. Til þess þarf hann keppnishæfan fák sem Red Bull mun áreiðanlega skaffa honum. nordicphotos/afp
Síðasta æfingalota Formúlu 1 liða áður en keppnistímabilið hefst þann 18. mars er í fullum gangi í Barcelona á Spáni. Í gær og í dag var Roman Grosjean á Lotus fljótastur þeirra 10 liða sem æfa.

Með hverjum æfingadeginum sem líður skýrist staða liðanna gagnvart hvort öðru og eru sérfróðir nú enn sannfærðari um að baráttan verði jöfn í ár.

  Á æfingunum, sem öll liðin nema Marussia og HRT taka þátt í, reyna liðin að auka skilning sinn á bílunum. Í þessari síðustu æfingalotu er athyglinni enn frekar beint að keppnishraða og öðrum þáttum sem þurfa að vera 100% í keppnum ársins eins og viðgerðahlé, ræsingar og nýting dekkjanna.

Raunar er HRT að berjast við að setja saman keppnisbíl sinn í verksmiðjum sínum í Madrid og stefna á að koma honum á brautina á sunnudag. "Það má ekkert útaf bregða því þá getum við gleymt þessu," sagði stjórnandi hjá liðinu í dag. Bíllinn féll á árekstrarprófi FIA í febrúar og er ekki enn kominn af tjökkunum og út á braut.

Þá er von á uppfærðum Red Bull bíl með flugi í kvöld. Heimsmeistarinn Sebastian Vettel vill ekki dæma tækið fyrr en hann hefur reynt uppfærslurnar. "Uuu, ég hef ekki séð neitt," sagði glottandi Vettel, aðspurður hvort áhorfendur myndu geta séð einhvern mun á bílunum á morgun. Það er aldrei að vita hvort Red Bull lumi á einhverju hernaðarleyndarmáli rétt í lok undirbúningsins.

Síðasta æfingalotan heldur áfram á morgun og sunnudag. Liðin halda þá í greni sín og gera ökutækin keppnishæf fyrir fyrsta mótið í Ástralíu þann 18. mars.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×