Kosið um að fjölga um eina deild og breyta leikbönnum á ársþingi KSÍ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. janúar 2012 12:30 Mynd/Stefán
Breiðholtsfélögin Leiknir og KB annarsvegar og KF úr Fjallabyggð hinsvegar eiga athyglisverðustu tillögurnar fyrir 66. ársþing KSÍ sem verður haldið á Hilton Nordica Hótel 11. febrúar næstkomandi. Hér er um að ræða tillaga um að fjölga um eina deild og leyfa fleiri gul spjöld áður en menn fara í leikbann. Grindvíkingar vilja líka að ungt knattspyrnufólk verði ári lengur í yngri flokkum og að aldursskipting verði nær því sem er í gangi hjá landsliðunum.Leiknir og KB leggja til að stofnað verði fimmta deild eða E-deild. Úrvalsdeild, B-deild, C-deild verði allar skipaðar tólf liðum, tíu lið verði í D-deild en félög sem eiga ekki lið í efstu fjórum deildunum verði síðan í E-deildinni. Aðalástæðan er að getumunurinn er orðinn of mikill í D-deildinni og að með þessu ætti breiddin að aukast.KF leggur til að leikmenn megi fá fjögur gul spjöld og fari ekki í leikbann fyrr en eftir fimmta gula spjaldið. Nú fara menn í bann eftir fjórða gula spjaldið. KF vill ennfremur að leikbannið færist upp alla leið þannig að næsta bann komi eftir sjö spjöld en ekki sex spjöld eins og er raunin í dag. Leikmenn fái því bönn eftir fimmta, sjöunda, níunda og ellefta spjald í staðinn fyrir fjórða, sjötta, áttunda og tíunda.Fullt að félögum leggja líka til að spjöld á Íslandsmóti og í bikarkeppni verði aðskilin og leikmenn taki út leikbönn innan hvors móts fyrir sig.Grindvíkingar leggja til að aldursskiptingu í yngri flokkum verði breytt og að ungt knattspyrnufólk verði ári lengur í yngri flokkum til þess að vinna gegn brottfalli. Leikmenn fari þannig upp í 1. flokk úr 2. flokk og verði þar árið sem þeir verða 21 árs. Leikmenn verði síðan í 2. flokk frá 18 til 20 ára í stað 17 til 19 ára eins og er í gildi í dag. Leikmenn verði síðan í 3. flokki 16 og 17 ára (áður 15 og 16 ára), í 4. flokki 14 og 15 ára (áður 13 og 14 ára), í 5. flokki 12 og 13 ára (áður 11 og 12 ára) og í 6. flokki fram að því að þeir eru 11 ára (10 ára áður). Það má sjá yfirlit yfir allar tillögur á ársþingi KSÍ 2012 með því að smella hér.
Íslenski boltinn Mest lesið Sögulegur samningur Víkinga Íslenski boltinn Missti næstum því fingur á móti Liverpool Fótbolti Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur Íslenski boltinn Samningur í höfn: Írar treysta Heimi fyrir EM á heimavelli Fótbolti Mörkin í Meistaradeild: Sjáðu stóru liðin setja upp sýningu Fótbolti Vill ekki falla í sömu gryfju og Svíar Fótbolti Fresta ákvörðun um hugsanlegt bann á Trump Sport Deilan leyst og spilað í Boston Fótbolti Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real Enski boltinn Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Fótbolti Fleiri fréttir Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni Sjá meira