Meirihlutinn vill leyfa staðgöngumæðrun 16. desember 2011 02:30 staðgöngumæðrun 23 þingmenn hafa lagt fram tillögu um að staðgöngumæðrun verði heimiluð. Tveimur minnihlutaálitum var skilað og meirihluti umsagnaraðila setur spurningarmerki við tillöguna. nordicphotos/getty
Meirihluti velferðarnefndar Alþingis hefur lagt til að þingsályktunartillaga um að heimila skuli staðgöngumæðrun verði samþykkt. Tveimur minnihlutaálitum var skilað þar sem lagst var gegn því að tillagan yrði samþykkt nú. Þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir að velferðarráðherra skipi starfshóp til að undirbúa frumvarp til laga sem heimili staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni. Flutningsmenn tillögunnar eru 23 þingmenn úr öllum flokkum nema Hreyfingunni. Meirihluti velferðarnefndar telur að tillagan sé vel unnin og leggur áherslu á að breytingar sem gerðar hafi verið milli þinga séu mjög til bóta. Tillagan var einnig lögð fram á síðasta þingi, en nú hefur meðal annars verið lögð meiri áhersla á hag og réttindi barnsins og staðgöngumóður. Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, skilaði minnihlutaáliti sem Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, var samþykk. Birgitta er áheyrnarfulltrúi í nefndinni. Þær segjast ekki geta stutt tillöguna að svo komnu máli. Meirihluti umsagnaraðila hafi verið á móti tillögunni í fyrra og hið sama sé uppi á teningnum nú. Erfið siðferðileg álitamál eigi eftir að gaumgæfa og ræða. Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokks, skilaði öðru minnihlutaáliti þar sem hún bendir á svipaða hluti og leggur áherslu á að málið verði unnið frekar áður en ákvörðun um smíði frumvarps verður tekin. - þeb
Fréttir Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira