Fagnar 30 ára afmæli með plötu 15. desember 2011 10:15 þrjátíu ára afmæli Hljómsveitin Metallica er þrjátíu ára um þessar mundir.nordicphotos/getty
Metallica hefur gefið út EP-plötuna Beyond Magnetic í tilefni þrjátíu ára afmælis hljómsveitarinnar. Þar eru fjögur áður óútgefin lög sem komust ekki á síðustu hljóðversplötu, Death Magnetic, sem kom út 2008. Þau nefnast Hate Train, Just a Bullet Away, Hell and Back og Rebel of Babylon. Metallica fagnaði stórafmælinu með fernum tónleikum í heimaborg sinni San Fransisco í síðustu viku og þar spilaði sveitin eitt nýtt lag á hverjum tónleikum. Gamlir meðlimir komu fram sem gestir, eða upphaflegi gítarleikarinn Dave Mustaine sem hefur verið forsprakki Megadeath, og upphaflegi bassaleikarinn Ron McGovney. Var þetta í fyrsta sinn frá árinu 1982 sem þeir spiluðu með Metallica. Annar fyrrverandi bassaleikari, Jason Newsted, var einnig meðal gesta en hann hætti í hljómsveitinni árið 2001 í nokkru fússi. Einnig komu fram á tónleikunum Lou Reed og meðlimir Black Sabbath, Lynyrd Skynyrd, Judas Priest, Alice In Chains og Faith No More. Síðan Metallica var stofnuð árið 1981 hefur hún selt yfir eitt hundrað milljónir platna og verið ein vinsælasta rokksveit heims.
Lífið Tónlist Mest lesið Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ Tónlist Þessi nældu sér í verðlaun á Golden Globe Lífið Stjörnulífið: Ár gellunnar Lífið Hús Björns og Hafdísar það dýrasta sem hefur verið selt Lífið Stóru spurningunni um dularfullt slys enn ósvarað Lífið „Á Íslandi eru konur hvattar til að dreyma og vera í forystu“ Lífið Leikirnir sem beðið er eftir Leikjavísir Þegar miðborgin stóð í ljósum logum Lífið RÚV hættir við Söngvakeppnina Lífið Fresta tökum á Love Island All Stars Lífið Fleiri fréttir Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Heitustu lögin á FM árið 2025 Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Prikið vekur athygli út fyrir landsteinana Abba skilar 350 milljörðum í kassann Ísraelar fá að vera með í Eurovision Halda aðra tónleika á Íslandi fyrir þá sem misstu af Allt alltaf alls staðar í allra besta lagi Miley Cyrus trúlofuð Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Sjá meira