Spennusaga úr norðlenskum veruleika Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 13. desember 2011 06:00 Myrknætti - Ragnar Jónasson
Bækur. Myrknætti eftir Ragnar Jónsson. Veröld gefur út. Myrknætti er þriðja spennusaga Ragnars Jónssonar um lögreglumanninn Ara. Sá starfar á Siglufirði og stígur þar fyrstu skrefin í nýju lífi og nýju starfi. Ragnari hefur farið fram með hverri bókinni og hefur náð ágætis tökum á spennusagnaforminu. Myrknætti er hans besta bók, en áður hafa komið út Fölsk nóta og Snjóblinda. Ragnar leikur sér mikið með umhverfið og Siglufjörður er áberandi í sögum hans; nánast eins og ein persónan. Það tekst honum vel. Óþarflega mikið gerir hann þó stundum úr áhrifum umhverfisins, sem virðist á stundum svo þrúgandi að Ari geti um fátt annað hugsað. Helsti gallinn á sögum Ragnars er söguhetjan. Ari er uppburðarlítill og virðist mikla fyrir sér hinar hversdagslegustu aðstæður. Því er vel að Ari fær minni sess í þessari bók en þeim fyrri og jafnvel hillir í að önnur sögupersóna, fréttakonan Ísrún, skipi stærri sess í næstu bókum. Það hljómar vel, í það minnsta þarf Ari að fara að taka sér tak og sýna smá manndóm eigi maður að nenna að fylgjast áfram með rannsóknum hans. Stíll Ragnars er ágætur og textinn flæðir vel áfram. Fléttan er fín, Ragnari tekst að búa til sannferðuga sögu úr íslenskum veruleika. Það er helst að lýsingar hans á starfi fréttamannsins einkennist af vel þekktum mýtum um það starf. Það er hins vegar smáatriði þegar kemur að heildarmynd sögunnar. Ragnari tekst vel að flétta mörgum sögum saman í Myrknætti og ljóst er að hann nær æ betri tökum á því formi sem hann hefur valið sér. Það verður því spennandi að fylgjast með honum í framtíðinni, hvort sem verður í sögum af Ísrúnu eða Ara, sem vonandi verður þá uppburðarmeiri. Niðurstaða: Sannferðug saga úr samtímanum. Ragnar hefur náð góðum tökum á spennusögunni.
Lífið Mest lesið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Lífið Fleiri fréttir Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Sjá meira