Lagerbäck tjáir sig ekki fyrr en viðræðum lýkur Henry Birgir Gunnarsson skrifar 4. október 2011 06:00 Lars Lagerbäck vill ekki ræða stöðu viðræðna við KSÍ sem stendur. nordicphotos/getty images
Það virðist vera komin nokkur hreyfing á landsliðsþjálfaramálin hjá KSÍ en Ólafur Jóhannesson stýrir sínum síðasta landsleik á föstudag. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, staðfesti við íþróttadeild í gær að hann væri í viðræðum við Svíann Lars Lagerbäck um að taka að sér starfið. Svíinn er einnig sagður vera í viðræðum við forráðamenn austurríska knattspyrnusambandsins. Talið var að hann væri úr myndinni þar en austurrískir miðlar greindu frá því í gær að Lagerbäck væri enn í myndinni hjá Austurríki. Lagerbäck lýsti yfir áhuga á að taka við íslenska landsliðinu í samtali við Fréttablaðið á dögunum. Þá sagðist hann vera til í að ræða við KSÍ og Fréttablaðið spurði hann í gær hver staða mála væri? „Á meðan ekkert er frágengið í mínum málum hef ég ákveðið að sleppa því að tjá mig. Þið verðið því að bíða og sjá hvað verður,“ segir Lagerbäck. „Þegar í ljós kemur hvort ég verði landsliðsþjálfari Íslands eður ei er þér velkomið að ræða eins mikið við mig og þú vilt. Ég tel það ekki vera rétt af mér að ræða mín mál í fjölmiðlum á meðan þau eru í óvissu. Ég held að það eigi við um alla.“ Hinn 63 ára gamli Lagerbäck var lengi vel landsliðsþjálfari Svía og kom liðinu á fimm stórmót í röð á sínum tíma. Hann hefur undanfarið verið að vinna fyrir sænska knattspyrnusambandið og Knattspyrnusamband Evrópu.
Íslenski boltinn Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings