Melódískir meistarar Trausti Júlíusson skrifar 21. maí 2011 10:00 Magnús og Jóhann er ómissandi pakki fyrir íslenska poppaðdáendur.
Ástin og lífið 1971 – 2011 er tvöföld ferilsplata með lögum eftir Jóhann Helgason og Magnús Þór Sigmundsson. Hún kemur út í tilefni af því að fjörutíu ár eru liðin frá því að þeir hófu að starfa saman, en fyrsta plata þeirra félaga, sem hét einfaldlega Magnús og Jóhann, kom út árið 1972. Þeir eru báðir afburða lagasmiðir og þess vegna er ekki erfitt að finna fjörutíu lög eftir þá fyrir safnplötu af þessu tagi. Flest lögin á Ástin og lífið eru vel þekkt og kalla fram minningar hjá íslenskum hlustendum. Þeir Magnús og Jóhann hafa að sjálfsögðu ekki starfað saman sem dúett samfellt í fjörutíu ár, en þeir hafa haldið sambandinu og haldið tónleika og gefið út plötur saman af og til. Þeir hafa samt aldrei samið lög saman. Á Ástin og lífið er jafnvægið fullkomið. Tíu lög eru á hvorum disk eftir Magnús og tíu eftir Jóhann. Bæði Magnús og Jóhann hafa samið mörg lög sem hafa náð vinsældum í flutningi annarra tónlistarmanna. Við getum nefnt sem dæmi Söknuð sem Vilhjálmur Vilhjálmsson söng, Start-lagið Seinna meir, Í Reykjavíkurborg sem Þú og ég flutti og Ást sem Ragnheiður Gröndal söng. Þeir hafa líka sjálfir sungið marga smelli, bæði saman sem Magnús og Jóhann, með Change og á þeim sólóplötum sem þeir hafa sent frá sér. Ástin og lífið er hugsuð sem lagahöfunda- og söngvaraplata og þess vegna eru þau lög sem þeir sjálfir sungu hér í sinni upprunalegu mynd, en þau sem aðrir gerðu fræg eru endurhljóðrituð, nokkur þeirra sérstaklega fyrir þessa útgáfu. Þetta þýðir að lög eins og Mary Jane, Yakety Yak Smackety Smack, Ástin og lífið, Álfar, Take Your Time, She‘s Done It Again, Jörðin sem ég ann og Blue Jean Queen eru hér í þeim útgáfum sem allir þekkja, en Söknuður og Seinna meir í nýjum útgáfum. Auk þess eru tvö ný lög, eitt eftir hvorn höfund. Almennt séð er ég mjög fylgjandi því að upprunalegar útgáfur séu notaðar á ferilsplötum af þessu tagi, en sú millileið sem hér er farin kemur mjög vel út og gefur pakkanum sterkari heildarmynd. Tónlistarlega hafa þeir félagar komið víða við. Einhvers konar þjóðlagapopp er áberandi og misdramatískar ballöður, en þarna er líka tölvupopp frá níunda áratugnum og rokk. Á heildina litið er þetta frábært safn. Útgáfan er líka glæsileg. Hönnunin er flott og í fjörutíu blaðsíðna bæklingi sem fylgir eru allir textarnir og upplýsingar um hvert lag fyrir sig, auk ljósmynda og skemmtilegs og fræðandi texta um þá félaga eftir Steinar Berg Ísleifsson. Ómissandi pakki fyrir íslenska poppaðdáendur.Niðurstaða: Glæsileg ferilsplata með tveimur af bestu lagasmiðum Íslandssögunnar.
Menning Tónlist Mest lesið „Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið Páskakveðjur stjórnmálaflokka: Gervigreind, páskaeggjaleit og Sigmundur með kanínueyru Lífið Svarar því hve mörg páskaegg þurfi að borða til að bæta á sig kílói Lífið Sjálfið okkar: Að verða okkar besta útgáfa Áskorun Ekki á leið í samband bara til að þóknast samfélaginu Lífið Losnaði við alla fíkn á augabragði: „Því Guð er með skyndilausnir líka“ Áskorun „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Tónlist Litla hryllingsbúðin kveður á Akureyri Lífið Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp Matargleði Evu: Dýrindis páskalamb Matur Fleiri fréttir Þetta er ástæðan fyrir því að þú átt aldrei að bjóða óperusöngvara í matarboð Spegill, spegill, herm þú mér, hve léleg endurgerðin er Rislítil ástarsaga Eldborg breyttist í vélrænt helvíti Kaldrifjað morð, ungar karlrembur og kæfandi andrúmsloft Strípibúlluást sem hleypir öllu í háaloft Stormur fellur á prófinu Víkingur Heiðar á fjölbreyttri afmælisveislu með ljóslifandi hápunktum Leiksigur Ladda Elísabet fær uppreist æru Sjá meira
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp